Deila þessari síðu
Strandveiðisjómenn fá að veiða meira í ár en í fyrra nú þegar fjórtánda strandveiðisumarið er handan við hornið. Alls verða nú 10.000 tonn af þorski í strandveiðipottinum á þessu tímabili, þar af 1.500 tonn sem skiluðu sér af skiptimörkuðum á útmánuðum og matvælaráðherra ákvað að bæta í strandveiðipottinn. Hlutfall strandveiða af leyfilegum heildarafla þorsks nemur nú 4,5% og hefur aldrei svo stórum hluta aflans áður verið úthlutað til strandveiða.
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra undirritaði nýja reglugerð um strandveiðar á dögunum en með henni er ætlunin að festa strandveiðar enn betur í sessi, segir á vef ráðuneytisins. „Í dag fá margar fjölskyldur hluta sinna heimilistekna frá strandveiðum. Sá afli sem er til ráðstöfunar fyrir strandveiðar hverju sinni miðast við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar og ákvörðun ráðherra um leyfilegan heildarafla.”
„Ég hef fengið fjölda erinda frá strandveiðimönnum þar sem ég hef verið hvött til að taka til skoðunar hvernig bæta megi kerfið þannig að verðmætasköpun verði sem mest og jafnræði landsvæða sem best. Þessa hvatningu tek ég alvarlega og og hef ég sett slíka vinnu af stað. Mikilvægt er að strandveiðar verði áfram tryggðar í þágu byggða, sjálfbærni og fæðuöryggis,“ segir Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, í tilkynningu frá ráðuneytinu.
Strandveiðar eru stundaðar frá maí til ágúst ár hvert. Grunnhugsunin að baki strandveiðum er að stunda megi veiðar með ströndinni á sjálfbæran og ábyrgan hátt en jafnframt opna möguleika fyrir þau sem ekki hafa yfir aflamarki að ráða á að reyna fyrir sér í sjávarútvegi.