Sunnlenskar ungnautakinnar

Price range: 2.380 kr. through 4.064 kr.

Kinnar úr sunnlenskum ungnautum sem sjaldan eru fáanlegar í verslunum en hafa fyrir löngu slegið í gegn á veitingastöðum. Kjörið til að hægelda og rífa niður. Matland býður í takmörkuðu magni upp á kinnar sem fengnar eru úr sláturhúsunum á Selfossi og Hellu og unnar hjá Villt og alið ehf. á Hellu. 1-2 kinnar í pakka.

Þú velur þína stærð með því að velja í fellivalsglugganum. Kílóverð er 4.190 krónur.

Kjötið er frosið.

Við sendum þér kjötið gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum SMS þegar varan er tilbúin til afhendingar. Líka hægt að sækja á afhendingarstöðvar Pikkoló. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , Merkimiðar: , , Vörunúmer:25541

Lýsing

Ungnautakinn.

Kílóverð: 4.190 kr.

Ágætt er að miða við 200 g á mann í aðalmáltíð.

Kinnarnar eru af nautgripum frá sunnlenskum kúabúum.

Frystivara.

Hvernig er best að elda nautakinnar?

Það er farsælast að hafa tímann fyrir sér þegar nautakinnar eru eldaðar. Helst að hægelda þær í ofni og njóta með góðu víni. Nanna Rögnvaldar deilir hér uppskrift að nautakinnum sem eru fyrst steiktar á pönnu en síðan látnar malla í 3 klst í ofnpotti.

Kinn við kinn

Það er líka tilvalið að rífa nautakinnar niður eftir eldun og nota í vefjur eða pítur. Bragðmikið og sérlega meyrt kjöt.

Ef búið er að frysta nautakjöt þá er gott að gefa sér góðan tíma í að afþíða kjötið í kæli. Mikilvægt er að taka út úr kæli a.m.k. klukkutíma áður en eldamennskan hefst og hafa kjötið við stofuhita.

Aðrar upplýsingar

Kjötið er unnið og pakkað hjá Villt og alið á Hellu.

Innihald: Ungnautakjöt – kinnar.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Suðurlandi.
Framleiðandi: Villt og alið.
Sláturhús: Sláturhús SS á Selfossi og Sláturhúsið á Hellu.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Nautakinnar

568 g, 580 g, 586 g, 652 g, 664 g, 696 g, 740 g, 970 g, 1036 g, 1126 g, 1132 g, 1248 g, 1250 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Sunnlenskar ungnautakinnar”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2026. Matfélagið ehf. Hrísateig 47, 105 Reykjavík. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard