Skip to content Skip to footer

Piparsteikur af grasfóðruðum Angus frá Holti

Price range: 3.649 kr. through 3.886 kr.

Piparsteikur af Angus-holdablendingum frá bænum Holti í Álftaveri í Vestur-Skaftafellssýslu. Þunnar steikur úr innralæri sem eru bæði meyrar og hóflega pipraðar. 2-3 steikur í pakka.

Gripir sem eru eingöngu aldir á grasi (útibeit) og heyi. Skrokkarnir fengu að hanga í 14 daga fyrir vinnslu sem kjötmeistararnir hjá Villt & alið á Hellu eiga heiðurinn af.

Frystivara.

Kílóverð er 6.990 krónur.  Veldu þá þyngd sem hentar þér í fellivalinu hér undir og settu í körfuna.

Við sendum þér kjötið gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , , Merkimiðar: , , Vörunúmer:55205

Lýsing

Piparsteik. Kílóverð: 6.990 kr. Frystivara.

Bændurnir

Í Holti í Álftaveri í Skaftárhreppi reka tvær kynslóðir blandað bú með mjólkurkýr, sauðfé og holdagripi ásamt hrossum. Ábúendur í félagsbúinu Holti eru Konný Sif Gottsveinsdóttir, Þorbergur Jónsson, Gottsveinn Eggertsson og Svana Sigurjónsdóttir.

Holdakýr og kvígur ganga úti fyrir opnu allt árið um kring og holdagripirnir eru einungis fóðraðir á grasi/heyi. Mynd / Úr einkasafni

Kjarnhiti nautakjöts

Lítið steikt / 52-55°
Lítið miðlungs / 55-60°
Miðlungs / 60-65°
Miðlungs mikið / 65-69°
Mikið steikt / 71-75°

Næringarinnihald

M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu nautakjöti:
Orka: 765 kJ, 183 kcal.
Próten: 24,3 g
Fita: 9,5 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4 g og ómettaðar 4,2 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0

Aðrar upplýsingar

Kjötið er af holdablendingum frá bænum Holti í Álftaveri og er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.

Innihald: Piparsteik úr innralæri. Svartur pipar og ungnautakjöt.
Upprunaland: Ísland, slátrað og unnið á Íslandi.
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Piparsteikur, þyngdir

484 g, 484 g, 504 g, 506 g, 522 g, 532 g, 536 g, 540 g, 556 g, 630 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Piparsteikur af grasfóðruðum Angus frá Holti”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…