Skip to content Skip to footer

Lærissneiðar – Yfir holt og heiðar – frá Árdal

3.209 kr.3.840 kr.

Matland býður upp lambakjöt frá Árdal í Kelduhverfi. Lærissneiðar í þurrkryddinu “Yfir holt og heiðar” þar sem græn Miðjarðarhafskrydd fá að njóta sín.

Kjötið kemur af heiðargengnum lömbum sem ganga á fullgrónum afrétti með lynggróðri og kjarri. Það fékk að hanga í 5 daga eftir slátrun sem þýðir að það er fullmeyrnað.

Lærissneiðarnar eru á bilinu 3-4 í pakka. Kg-verð er 5.260 kr.

Fullmeyrnað lambakjöt. Frystivara.

Við sendum þér kjötið gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík. Afhendum samdægurs ef pantað er fyrir hádegi, annars daginn eftir. Matland sendir SMS þegar varan er tilbúin til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , , Merkimiðar: , , , Vörunúmer:57742

Lýsing

Lambakjötið frá Árdal fékk að hanga í 5 daga eftir slátrun. Við það verður kjötið meyrara en léttist að sama skapi þar sem vökvi gufar upp úr því.

Bændurnir

Bærinn Árdalur er í Kelduhverfi í Norður-Þingeyjasýslu. Þar búa hjónin Salbjörg Matthíasdóttir og Jónas Þór Viðarsson með börnum sínum þremur þeim Heiðnýju, Sigursveini og Hrafney. Á bænum eru um 120 vetrarfóðraðar kindur, átta hestar og tveir hundar

Árið 2021 byggðu bændurnir kjötvinnslu á jörðinni sem fékk nafnið Árdalsafurðir. Með komu hennar hafa Salbjörg og Jónas selt vörur sínar með upprunamerkingum beint frá býli. Þau vinna bæði utan bús en Salbjörg er í 90% starfi hjá Landgræðslunni og Jónas er í hlutastarfi sem tónlistakennari hjá Tónlistarskóla Húsavíkur ásamt því að stunda smíðar.

Á hverju ári fæðast á bilinu 180-190 lömb í Árdal og nýtur fjölskyldan þess að hugsa um kindurnar, taka þátt í samfélaginu í gegnum búskapinn og vinna afurðirnar sjálf. Auk sauðfjárræktarinnar í Árdal stunda Salbjörg og Jónas hestamennsku; ríða út og fara í hestaferðir á sumrin.


Salbjörg Matthíasdóttir, bóndi í Árdal ásamt hrútinum Vin sem gaf einstaklega kjötmikil og væn lömb. Mynd / Árdalur

Grænlamb – sauðfé sem eingöngu er beitt á vel gróið land

Bændurnir í Árdal markaðssetja vörurnar sínar undir vörumerkinu “Grænlamb”. Notendur merkisins eru framleiðendur sauðfjárafurða í Kelduhverfi og söluaðilar þeirra. Einungis afurðir sauðfjár sem gengur í sameiginlegum beitilöndum Keldhverfinga eru markaðssettar og seldar undir merki Grænlambs. Lömb merkt Grænlambi hafa öll verið á vel grónu beitilandi.

Kelduhverfið er rauðlitað á Íslandskortinu. Bærinn Árdalur er mitt á milli Húsavíkur og Kópaskers. Mynd / Grænlamb

Yfir 90% beitilands Keldhverfinga er vel gróið og stendur Grænlamb fyrir afurðir af grónu landi.

  • Beitilandið er víðáttumikið og að mestu undir 300 m hæð yfir sjó.
  • Hver kind hefur um 18 hektara til umráða fyrir sig.
  • Um 9 þúsund fermetrar af grónu landi eru fyrir hvert kíló framleidds lambakjöts á svæðinu.
  • Heiðar Kelduhverfis eru nánast eingöngu mólendi með ríkjandi lynggróðri, kjarri og birkiskógi, sem einkennist af hraunklöppum og hraundröngum á yfirborði.

Sauðfé að hausti. Mynd / Áskell Þórisson

Varan

Innihald í kryddblöndu á lambakjötinu: Oregano, rósmarín, hvítlaukur, marjoram, timian, persnesk sítróna, rósapipar, grænn pipar og blóðberg.

Frystivara.

Innihald: Grillkjöt – lærissneiðar með þurrkryddinu “Yfir holt og heiðar”. Kartöflusalat með kartöflum frá Biobóndanum.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Árdal í Kelduhverfi
Framleiðandi: Kjötvinnslan Árdalsafurðir
Sláturhús: Sláturhúsið á Kópaskeri
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Lærissneiðar, þyngdir

610 g, 610 g, 670 g, 680 g, 710 g, 720 g, 730 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Lærissneiðar – Yfir holt og heiðar – frá Árdal”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…