Skip to content Skip to footer

Piparrótarsósa frá Stonewall

1.470 kr.

Matland býður upp á gæðasósurnar frá Stonewall. Piparrótarsósa, “Horseradish Aioli”, hentar vel með fiski, kjöti og fleiru. Ómissandi með hráskinkum og gröfnu kjöti.

291 g glerkrukka.

Matland afhendir vörur á Hrísateig 47 í Reykjavik daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Keyrum út til viðskiptavina á höfuðborgarsvæðinu og sendum um allt land með Samskipum.

2 á lager

Flokkar: , Vörunúmer:57775

Lýsing

Varan

Piparrótarsósa frá Stonewall – Horseradish Aioli. Glútenfrí.

Stonewall Kitchen eru hágæða amerískar sælkeravörur. Fyrirtækið var stofnað af Jim Stott og Jonathan King árið 1991. Þeir byrjuðu að selja heimagerðar sultur á bændamarkaði í Portsmouth, New Hampshire til vina og vandamanna. Strax á fyrsta degi slógu sulturnar þeirra í gegn og hjólin byrjuðu að snúast. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og í dag selja þeir undir vörumerki sínu Stonewall Kitchen fjöldann allan af sælkeravörum sem margar hverjar hafa unnið til verðlauna í sínum flokki. Fyrirtækið varð fyrst þekkt  fyrir sulturnar sínar en í dag er það ekki síður þekkt pastasósur, salsa, salatdressingar, aioli, kex og margt fleira.

Næringargildi í 100 g eða 100 ml:
Orka: 2510 kJ, 600 kkal
Fita: 68 g., þar af mettaðar fitusýrur 6,7 g
Kolvetni: 0 g
Þar af sykur 0 g
Trefjar: 0 g
Prótein: 0 g
Salt: 0,9 g

Innihald: Canolaolía, söltuð egg, piparrót (piparrótar­rætur, edik, salt), Dijonsinnep (edik, vatn, sinnepsfræ, salt, hvítvín, sítrónusýra, túrmerik, vínsteinsýra, krydd), hvítt edik, wasabi-olía (canolaolía, wasabi-duft, sinnepsolía), sinnepsduft, náttúrulegt bragðefni (sojabaunaolía, kryddþykkni, sinnepsþykkni), vatn, piparrótarduft, hvítlauksduft, náttúrulegt bragðefni og tókóferól (náttúrulegt andoxunarefni).

Ofnæmisvaldar: EGG

Upprunaland: Bandaríkin
Pökkun og dreifing: Stonewall – HB-heildverslun
Framleiðendur: Stonewall

Þér gæti einnig líkað við…