Skip to content Skip to footer

Osso bucco frá Tjörn

3.356 kr.6.233 kr.

Osso bucco frá Tjörn á Mýrum í Hornafirði. Kjötið er af nauti sem hefur eingöngu verið fóðrað á grasi. Kjötið er vel hangið en það fékk 14 daga í meyrnun áður en það var unnið. Takmarkað magn.

Frystivara.

Kílóverð: 3.190 kr. Veldu í fellivalinu hér undir þá stærð hentar þér.

Matland sendir þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir á afgreiðslustað Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum SMS þegar hægt er að sækja vöruna. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , Merkimiðar: , , , Vörunúmer:58365

Lýsing

Fyrsta flokks ungnautakjöt frá Tjörn á Mýrum í Hornafirði. Íslenskt gæðanaut.

Osso bucco. Kílóverð: 3.190 kr.

Frystivara.

Bændurnir

Á bænum Tjörn á Mýrum búa bræðurnir Halldór og Agnar Ólafssynir. Þeir eru ungir að árum en hafa tekið við búskap og rekstri á Tjörn.

Nautabúskapurinn á Tjörn er lítill í sniðum en alls eru á þriðja tug nauta í eldi á bænum. Auk þess eru þeir bræður með kindur. Báðir hafa þeir atvinnu utan búsins. Halldór starfar á býlinu Flatey sem er í hópi stærstu kúabúa landsins en Agnar er vélvirki og sinnir vélaviðgerðum fyrir sveitunga sína ásamt fjölbreyttri vélaverktöku. Agnar hefur um árabil getið sér gott orð fyrir þjálfun á fjárhundum og unnið til verðlauna í smalahundakeppnum.


Halldór og Agnar á kornakri í Hornafirði.

Halldór ber ábyrgð á nautaeldinu á Tjörn en hann er mikill ræktunarmaður og hefur gríðarlegan áhuga á skepnum. Hann skírir öll nautin og þekkir ættir bæði feðra og mæðra út og inn. Það þykir sérstakt við nautin á Tjörn að þau eru mörg fallega hyrnd. Það er áhugamál Halldórs og velur hann nautkálfa meðal annars eftir því hvort foreldrarnir séu með horn. Nautkálfana fá þeir bræður nokkurra vikna gamla frá búinu í Flatey og ala þá á Tjörn í sláturstærð í um tvö ár. Nautin á Tjörn eru eingöngu grasfóðruð en kálfarnir fá mjólk fyrstu vikurnar.


Fjósið í Flatey. Nautkálfarnir á Tjörn eru ættaðir frá kúabúinu í Flatey á Mýrum þar sem Halldór starfar. Þaðan eru þeir fluttir nokkurra vikna gamlir að Tjörn þar sem þeir eru aldir í sláturstærð. Myndir / TB

 

Aðrar upplýsingar

Kjötið frá Tjörn er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.

Innihald: Ungnautakjöt – osso bucco.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Tjörn á Mýrum í Hornafirði.
Framleiðandi: Villt og alið á Hellu.
Sláturhús nr. A067 – Sláturhús Hellu hf.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Osso bucco

1052 g, 1382 g, 1448 g, 1450 g, 1468 g, 1562 g, 1628 g, 1736 g, 1954 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Osso bucco frá Tjörn”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…