Lýsing
Afhending mánudaginn 6. október eftir kl. 14.00
Varan
Kjötið hefur fengið að hanga í 5 daga. Við það að hanga verður kjötið meyrara.
Lambakjötið kemur niðursagað í kassa og er lausfryst. Viðskiptavinur þarf sjálfur að setja í minni umbúðir kjósi hann svo. Kjötið er frosið.
Bændurnir
Matland fær lambakjötið frá bænum Miðhúsum á Ströndum. Þar búa hjónin Viðar Guðmundsson og Barbara Guðbjartsdóttir. Þau eiga fimm börn en einungis eitt þeirra er eftir á heimilinu. Hin eldri eru ýmist alflutt eða hálfflutt í burtu og stunda nám og vinnu fjarri heimahögunum. Auk þeirra Viðars, Barböru og drengjanna tveggja býr Guðmundur Kristinn faðir Viðars í næsta húsi.
Barbara og Viðar á sólríkum degi í sveitinni. Myndir / Úr einkasafni
Þorsteinn Óli, hrúturinn Skari Kveiksson og Unnur Erna.
Fjölskyldan flutti norður á Strandir haustið 2007 úr Borgarfirðinum og tók við sauðfjárrekstri í Miðhúsum. Í dag eru ríflega 500 vetrarfóðraðar ær í Miðhúsum auk þess sem Viðar og Barbara hafa komið sér upp litu kálfaeldi. Kálfarnir eru einstaklega blíðir og spakir, fá klapp svo gott sem daglega og Barbara syngur fyrir þá reglulega. Barbara og Viðar leggja mikla rækt í að hafa kálfana spaka og rólega því það skilar sér margfalt í kjötgæðum. Kálfarnir eru eingöngu aldir á grasi og hið sama má segja um sauðféð. Þær fá þó smá fóðurbæti eftir burð og þar til þær fara út í vorið. Ánum er sýnd hlýja og fá þær klapp og söng líka líkt og nautin og eru þær margar hverjar spakar og miklir karakterar. Hestar eru í Miðhúsum, flestir í eigu Guðmundar Kristins og einnig eru á bænum nokkrir border collie smalahundar.
Bærinn Miðhús í Kollafirði á Ströndum.
Gæðaflokkun á lambakjöti
Smekkur neytenda er misjafn en almennt þykir eftirsóknarvert að kjöt flokkist í E, U, eða R í kindakjötsmatinu EUROP. Flokkarnir sem eru í boði frá Miðhúsum eru E, U og R. Mynd: Kjötbókin/Matís
Holdfyllingaflokkar lambaskrokka
E: Ágæt holdfylling. Allar útlínur mjög kúptar.
U: Mjög góð holdfylling. Útlínur að mestu kúptar.
R: Góð holdfylling. Útlínur að mestu beinar.
O: Sæmileg holdfylling. Útlínur nokkuð hvolfar.
P: Rýr holdfylling. Útlínur allar íhvolfar eða mjög íhvolfar
Fituflokkar lambastrokka:
1: Mjög lítil fita. Síðufita <5 mm
2: Lítil fita. Síðufita <8 mm
3: Eðlileg fita. Síðufita <11 mm
3+: Mikil fita. Síðufita <14 mm
4: Mjög mikil fita. Síðufita <18 mm
5: Óhóflega mikil fita. Síðufita >18 mm
Um vörurnar
Upprunaland: Ísland
Pökkun og dreifing: Grímsstaðaket. Dreifing á höfuðborgarsvæðinu: Matland. Dreifing utan höfuðborgarsvæðisins er á vegum Samskipa.
Slátrað og unnið á Íslandi.
Sláturhús: Grímsstaðaket í Borgarbyggð.
Framleiðendur: Lambakjötið kemur frá bænum Miðhúsum á Ströndum. Slátrun og vinnsla kjötsins fer fram á Grímsstöðum í Borgarbyggð.
Sláturhús: Grímsstaðaket.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is
Afhendingarstaður fyrir þá sem sækja vöruna í Reykjavík: Matland, Hrísateig 47 í Reykjavík.