Skip to content Skip to footer

Kálfaentrecote frá Norðtungu

8.674 kr.

Entrecote af holdakálfum frá Norðtungu I í Borgarfirði. Kjötið er af 10 mánaða gömlum holda-eldiskálfum. Meyrt og ljúft kjöt. Heilt stykki sem þú getur annað hvort eldað í heilu eða skorið í steikur.

Þú velur þá stærð sem hentar þér í fellivalinu hér undir. Kílóverð 7.690 kr.

Kjötið er frosið og fullmeyrnað.

Við sendum þér kjötið gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík, daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , , , Merkimiðar: , , Vörunúmer:67671

Lýsing

Búskapurinn

Irma Þöll Þorsteinsdóttir rekur nautgripabú í Norðtungu I í Þverárhlíð þar sem eru ríflega 90 kýr. Hún hefur um árabil selt kjöt undir vörumerkinu “Tungutugga” sem margir kannast við úr Fjarðarkaupum. Á búinu eru holdagripir í bland við íslenska kúakynið. Matland býður upp á alikálfakjöt frá Norðtungu.

Kjarnhiti nautakjöts

Lítið steikt / 52-55°
Lítið miðlungs / 55-60°
Miðlungs / 60-65°
Miðlungs mikið / 65-69°
Mikið steikt / 71-75°

Aðrar upplýsingar

Kjötið frá Norðtungu sem er til sölu hjá Matlandi er unnið og pakkað af Villt og alið á Hellu.

Frystivara.

Innihald: Alikálfakjöt, entrecote
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Norðtungu I.
Framleiðandi: Villt og alið
Sláturhús: Sláturhúsið Hellu.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Kálfaentrecote, þyngdir

1116 g, 1128 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Kálfaentrecote frá Norðtungu”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…