Skip to content Skip to footer

Taðreyktur lax – heil flök

Price range: 7.792 kr. through 7.916 kr.

Taðreyktur lax frá fyrirtækinu Hnýfli í Eyjafirði. Laxinn er úr landeldi úr Öxarfirði og þykir einstaklega bragðgóður. Verkunaraðferðir Hnýfils byggja á gamalgrónum hefðum og reynslu Davíðs Kristjánssonar reykmeistara. Allur fiskur er handflakaður og þurrsaltaður með því að strá salti yfir flökin. Engin aukaefni eru notuð í reykferlinu.

Heil flök sem vega á bilinu 880-1080 g. (Athugið að heila flakið á aðalmyndinni er 1 kg að þyngd). Kg-verð 7.330 kr. Frystivara.

Veljið ykkar flak í fellivalinu hér undir.

Við afhendum laxinn í Matlandi á Hrísateig 47 daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum SMS-skilaboð þegar varan er tilbúin til afhendingar. Keyrum heim til viðskiptavina á höfuðborgarsvæðinu sem það kjósa síðdegis og á kvöldin gegn vægu gjaldi. Sendum með Samskipum um allt land.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , , , , Vörunúmer:73017

Lýsing

Gömul aðferð við að reykja fisk

Fiskverkunin Hnýfill var stofnuð i desember 1995 af Davíð Kristjánssyni reykmeistara, Ingveldi Jóhannesdóttur, Þorvaldi Þórissyni og Erni Smára Kjartanssyni.

Fyrsta starfsstöðin var að Skipatanga 35 á Akureyri. Markmið félagsins var reyking hverskyns sjávarafurða og sala þeirra, einnig saltaðra, þurrkaða og nýrra fiskafurða á nærmarkaði.

Reykingin byggist á aðferðum sem þróaðar voru hjá Reykmiðstöðinni sem einn af stofnendum Hnýfils, Davíð átti og rak á árunum 1973-1985. Aðferðina má kalla gamaldags þar sem engin aukaefni eru notuð.

Eingöngu salt, vandað reykefni og þurrkun, sem sagt eingöngu náttúruleg efni, sem þótti mjög sérstakt á sínum tíma en eftirsóknarvert í dag.

Árið 1999 festu eigendur Hnýfils kaup á 480 m2 húsi að Óseyri og fluttu inn í húsnæðið um áramótin 2000. Húsnæðið var þá 15 ára gamalt, mjög vandað og snyrtilegt hús til allrar matvælavinnslu.

Vörurnar sem Hnýfill selur og framleiðir á smásölu- og mötuneytamarkað í reykvörulínunni eru: kofareyktur silungur, lax, og rauðmagi, hrefnukjöt en einnig reykt ýsa og þorskur. Einnig framleiðir fyrirtækið talsvert af gröfnum laxi.

Innihaldslýsing

Lax, salt.

Næringargildi í 100 g.:

Orka 697 kJ/167 kkal
Fita 8,2 g
-þar af mettuð 1,5 g
Kolvetni 0 g
-þar af sykurtegundir 0 g
Trefjar 0 g
Prótein 23,2 g
Salt 5,5 g

Frystivara. Geymist við -18°C.

 

Framleiðandi: Hnýfill – fiskvinnsla – reykhús
Óseyri 22, 603 Akureyri – sími 462-1751

Frekari upplýsingar

Taðreyktur lax, þyngdir

886 g, 899 g, 1032 g, 1063 g, 1080 g

Þér gæti einnig líkað við…