Lýsing
Varan
Piparrótarsósa frá Stonewall – Horseradish Aioli. Glútenfrí.
Stonewall Kitchen eru hágæða amerískar sælkeravörur. Fyrirtækið var stofnað af Jim Stott og Jonathan King árið 1991. Þeir byrjuðu að selja heimagerðar sultur á bændamarkaði í Portsmouth, New Hampshire til vina og vandamanna. Strax á fyrsta degi slógu sulturnar þeirra í gegn og hjólin byrjuðu að snúast. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og í dag selja þeir undir vörumerki sínu Stonewall Kitchen fjöldann allan af sælkeravörum sem margar hverjar hafa unnið til verðlauna í sínum flokki. Fyrirtækið varð fyrst þekkt fyrir sulturnar sínar en í dag er það ekki síður þekkt pastasósur, salsa, salatdressingar, aioli, kex og margt fleira.
Næringargildi í 100 g eða 100 ml:
Orka: 2510 kJ, 600 kkal
Fita: 68 g., þar af mettaðar fitusýrur 6,7 g
Kolvetni: 0 g
Þar af sykur 0 g
Trefjar: 0 g
Prótein: 0 g
Salt: 0,9 g
Innihald: Canolaolía, söltuð egg, piparrót (piparrótarrætur, edik, salt), Dijonsinnep (edik, vatn, sinnepsfræ, salt, hvítvín, sítrónusýra, túrmerik, vínsteinsýra, krydd), hvítt edik, wasabi-olía (canolaolía, wasabi-duft, sinnepsolía), sinnepsduft, náttúrulegt bragðefni (sojabaunaolía, kryddþykkni, sinnepsþykkni), vatn, piparrótarduft, hvítlauksduft, náttúrulegt bragðefni og tókóferól (náttúrulegt andoxunarefni).
Ofnæmisvaldar: EGG
Upprunaland: Bandaríkin
Pökkun og dreifing: Stonewall – HB-heildverslun
Framleiðendur: Stonewall

