Skip to content Skip to footer

Nautahakk (8-12%) frá Gerðum – 5 pk.

8.850 kr.

Nautahakk með 8-12% fitu frá bænum Gerðum í Flóa. 5 pk x 500 g = 2,5 kg. Pakkarnir eru flatir og staflast vel í frysti. Engin íblöndunarefni – bara hreint hakk. Skrokkarnir fengu að hanga í 14 daga sem gerir það að verkum að það verður minni kjötsafi á pönnunni þegar hakkið er steikt. Þú finnur muninn.

Unnið hjá Villt & alið á Hellu. Frystivara.

5 pk x 500 g = 2,5 kg. Kílóverð er 3.540 krónur. Heildarverð fyrir pakkann er 8.850 kr.

Við sendum þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

20 á lager

Lýsing

Bændurnir

Stefán Geirsson og Silja Rún Kjartansdóttir búa í Gerðum í Flóa ásamt dætrum sínum. Þar á bæ byggir búreksturinn aðallega á mjólkurframleiðslu en nautakjötsframleiðsla hefur verið snar þáttur í rekstrinum síðustu 10 ár. Samhliða eldi nauta af íslensku kúakyni er lítil hjörð gripa af Aberdeen Angus stofni til að auka framboð á gæðagripum til slátrunar.


Sláttur í Flóa. Lykillinn að góðu nautaeldi er að vera með orku- og næringarríkt heimaaflað fóður. 

Næringarinnihald

M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu nautakjöti:
Orka: 765 kJ, 183 kcal.
Próten: 24,3 g
Fita: 9,5 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4 g og ómettaðar 4,2 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0

Aðrar upplýsingar

Kjötið er af kvígum frá bænum Gerðum í Flóa og er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.

Innihald: Ungnautahakk, 8-12% feitt.
Upprunaland: Ísland, slátrað og unnið á Íslandi.
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Mínútusteikur, þyngdir

458 g, 482 g, 490 g, 490 g, 494 g, 502 g, 502 g, 512 g, 528 g, 532 g, 532 g, 532 g, 534 g, 540 g, 556 g, 572 g, 596 g, 596 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Nautahakk (8-12%) frá Gerðum – 5 pk.”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…