Lýsing
Angus ungnautakjöt frá Gerðum í Flóa.
Hamborgarar. Kílóverð: 4.107 kr. Frystivara.
Bændurnir
Stefán Geirsson og Silja Rún Kjartansdóttir búa í Gerðum í Flóa ásamt dætrum sínum. Þar á bæ byggir búreksturinn aðallega á mjólkurframleiðslu en nautakjötsframleiðsla hefur verið snar þáttur í rekstrinum síðustu 10 ár. Samhliða eldi nauta af mjólkurkúakyni er lítil hjörð gripa af Aberdeen Angus stofni til að auka framboð á gæðagripum til slátrunar.

Fallegir Angus holdagripir úti á túni. Aberdeen Angus eru rómaðir fyrir gott skap og eru þægilegri í umgengni en ýmis önnur nautgripakyn. Myndir / Bændur í Gerðum

Sláttur í Flóa. Lykillinn að góðu nautaeldi er að vera með orku- og næringarríkt heimaaflað fóður.
Aðrar upplýsingar
Kjötið frá Gerðum er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.
Innihald: Hamborgarar, 2 x 5 stk. Fituinnihald 12-15%.
Upprunaland: Ísland, slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Gerðum
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhús Suðurlands
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is


Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.