Skip to content Skip to footer

Uxasnitsel frá Reykjahlíð

Price range: 2.307 kr. through 2.711 kr.

Snitsel af uxum frá Reykjahlíð á Skeiðum. Kjöt sem fékk að hanga í 14 daga. Í hverjum pakka eru 3-5 sneiðar.

Það er einfalt að steikja snitsel. Kryddaðu eftir þínum smekk og veltu kjötinu upp úr hveiti. Því næst upp úr hrærðum eggjum og þar næst í panko-raspi. Steikið á pönnu í mikilli olíu. Njótið með kartöflusalati, súrkáli eða sýrðum gúrkum. Sítrónan er ómissandi.

Engin skylda að steikja upp úr hveiti og raspi. Það er líka hægt að léttsteikja án allra stæla – skera svo í strimla og njóta með bernés eða annarri ljúfri sósu.

Kílóverð: 4.690 kr.

Frystivara. Veldu þá stærð sem hentar þér í fellivalinu hér undir.

Við sendum þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , Merkimiðar: , , Vörunúmer:76566

Lýsing

Bændurnir og Búkostakjötið

Bændurnir Ingvar Hersir Sveinsson og Melissa Line í Reykjahlíð á Skeiðum búa með kýr og ala uxa í sláturstærð. Þau hafa um nokkur skeið selt kjöt beint frá býli undir heitinu „Búkostakjöt“.
Uxakjöt er af nautum sem eru gelt um 6 mánaða aldur. Kjötið þykir mjög meyrt og vel fitusprengt þar sem vaxtarhraði er hægari en í hefðbundnu nautaeldi. Uxarnir eru nokkuð spakir og eru eins mikið utandyra og mögulegt er.

Gripirnir í Reykjahlíð fá einungis heimaræktað hey og bygg ásamt óerfðabreyttu kjarnfóðri án pálmafitu. Allt heimaræktað fóður er framleitt án eitur-og varnarefna.


Bændurnir Ingvar Hersir Sveinsson og Melissa Line eru bændur í Reykjahlíð. Myndir / Reykjahlíð


Nautgripirnir í Reykjahlíð hafa það gott yfir sumartímann. Uxarnir eru rólegir og spakir. 

Næringarinnihald

M.v. 100 grömm:
Orka: 834 kJ, 199 kcal.
Próten: 19,0 g
Fita: 13,8 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 5,6 g og ómettaðar 6,4
Kólestról: 63 mg
Kolvetni: 0
Vatn: 65,8 g

Aðrar upplýsingar

Kjötið frá Reykjahlíð er unnið og pakkað hjá Villt og alið á Hellu.

Innihald: Ungnaut (UN). Uxakjöt – snitsel
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Reykjahlíð á Skeiðum.
Framleiðandi: Villt og alið.
Sláturhús nr. A067 – Sláturhús Hellu hf.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Snitsel, þyngdir

492 g, 494 g, 500 g, 502 g, 502 g, 512 g, 516 g, 518 g, 522 g, 524 g, 528 g, 534 g, 534 g, 534 g, 540 g, 542 g, 546 g, 546 g, 556 g, 556 g, 558 g, 558 g, 560 g, 564 g, 566 g, 570 g, 570 g, 572 g, 574 g, 576 g, 578 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Uxasnitsel frá Reykjahlíð”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…