Skip to content Skip to footer

Rjómaís frá Gunnbjarnarholti – 3 bikarar

1.590 kr.

Hreppa-Rjómaís er unninn úr fyrsta flokks Hrepparjóma og Hreppamjólk frá Fjölskyldubúinu í Gunnbjarnarholti. 3 x 125 ml bikarar af fyrirtaks rjómaís með vanillubragði. Hver bikar hentar frábærlega sem eftirréttur fyrir einn.

Verð 1.590 kr. pakkinn með 3 bikurum. Frystivara. 

Þú velur fjölda pakka hér undir og setur í körfu.

Við sendum þér vöruna gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

4 á lager

Lýsing

Arnar Bjarni Eiríksson og Berglind Bjarnadóttir voru kornung þegar þau hófu búskap árið 1988 með um 20 kýr. Á jörð þeirra hefur verið stundaður kúabúskapur síðan 1789 af sömu fjölskyldu, forfeðrum Arnars í sjö ættliði. Uppbyggingin hefur verið mikil og nú áratugum síðar hafa þau ásamt fjölskyldu sinni byggt yfir um 500 gripi í Gunnbjarnarholti, þar af um 230 mjólkandi kýr í einu fullkomnasta fjósi landsins. Fyrir nokkru hófu þau markaðssetningu á mjólkurvörum frá Gunnbjarnarholti undir heitinu Hreppamjólk en Margrét dóttir þeirra fer fyrir þeim hluta starfseminnar á búinu.


Þórhildur Arnarsdóttir kynnir vörur frá Hreppamjólk. Mynd / Matland

Fjósið í Gunnbjarnarholti er engin smásmíði. /Myndir úr einkasafni.

Velferð kúnna er í fyrirrúmi í fjósinu í Gunnbjarnarholti og þess gætt að kýrnar njóti besta atlætis og aðbúnaðar sem völ er á. Í hluta byggingarinnar er mjólkurbú þar sem m.a. er framleidd neyslumjólk, skyrdrykkir, jógúrt og rjómi. Við veginn neðan við fjósið er lítil verslun með sjálfsölum þar sem hægt er að kaupa mjólkurvörur frá búinu, s.s. Hreppamjólk, skyrdrykki og ís. Kjötið frá Gunnbjarnarholti, sem fæst á Matlandi, er af holdablendingum í lítilli hjörð sem bændurnir hafa ræktað síðustu ár.

Næringarinnihald:
Orka: 1025 kJ, 245 kcal.
Prótein: 4 g
Fita: 14 g, þ.a. mettuð 11 g
Kolvetni: 25 g, þar af sykurtegundir 23 g
Salt: 0,2 g

Innihald : MJÓLK, RJÓMI, sykur, UNDANRENNUDUFT, glúkósaduft, bindiefni (natríumalgínat, karóbgúmmí, gúargúmmí, karragenan, karboxý-metýl sellulósi, ein- og tvíglýseríð), bragðefni.‍ Gæti innihaldið snefil af hnetum og möndlum.

Magn : 125 ml

Aðrar upplýsingar

Ísinn frá Gunnbjarnarholti er unninn og pakkaður hjá Kjörís.

Innihald: Ís frá Hreppamjólk. Best fyrir: Sjá á umbúðum.
Upprunaland: Ísland
Bú: Gunnbjarnarholt
Framleiðandi: Kjörís í Hveragerði.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Fjöldi flaskna

2 flöskur – 2 x 250 ml, 4 flöskur – 4 x 250 ml, 6 flöskur – 6 x 250 ml

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Rjómaís frá Gunnbjarnarholti – 3 bikarar”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…