Skip to content Skip to footer

Ferskar pichanasteikur frá Gerðum

Price range: 1.195 kr. through 2.811 kr.

Pichanasteik af nautgripum frá Gerðum. Skrokkarnir fengu að hanga í 14 daga sem gerir kjötið meyrara fyrir vikið. Pichana er frábær á grillið eða pönnuna. Litlar steikur en bæði meyrar og bragðgóðar.

Kælivara. Best fyrir 29. apríl.

Kílóverð er 6.790 krónur.  Veldu þá stærð sem hentar þér í fellivalinu hér undir og settu svo í körfuna.

Við sendum þér kjötið gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Má bjóða þér sósu?

Verð vöru:1.195 kr.
Aukahlutir:
Samtals:

Lýsing

Bændurnir

Stefán Geirsson og Silja Rún Kjartansdóttir búa í Gerðum í Flóa ásamt dætrum sínum. Þar á bæ byggir búreksturinn aðallega á mjólkurframleiðslu en nautakjötsframleiðsla hefur verið snar þáttur í rekstrinum síðustu 10 ár. Samhliða eldi nauta af mjólkurkúakyni er lítil hjörð gripa af Aberdeen Angus stofni til að auka framboð á gæðagripum til slátrunar.


Sláttur í Flóa. Lykillinn að góðu nautaeldi er að vera með orku- og næringarríkt heimaaflað fóður. 

Næringarinnihald

M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu nautakjöti:
Orka: 765 kJ, 183 kcal.
Próten: 24,3 g
Fita: 9,5 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4 g og ómettaðar 4,2 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0

Aðrar upplýsingar

Kjötið er af kvígum frá bænum Gerðum í Flóa og er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.

Innihald: Pichanasteik.
Upprunaland: Ísland, slátrað og unnið á Íslandi.
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Pichanasteik, þyngdir

176 g, 184 g, 258 g, 260 g, 268 g, 276 g, 280 g, 288 g, 290 g, 338 g, 354 g, 414 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Ferskar pichanasteikur frá Gerðum”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…