Lýsing
Hvernig er best að elda nautarif?
Nautarif krefjast langrar eldunar og það er best að hafa þolinmæðina með í för þegar þau eru matreidd.
Kryddið eftir smekk. Matland mælir með að nota grófmulinn pipar og flögusalt.
Fjórar aðferðir sem Matland mælir með:
- Sjóðið rifin í potti. Setjið bjór, vatn, grænmeti og krydd í pott ásamt rifjunum og látið malla við lágan hita í 3 klst. Skellið svo rifjunum á snarkheitt grill og penslið með bbq-sósu.
- Rifin sett í eldfast mót í ofn. Látið bjór í botninn ásamt grænmeti og kryddi. Hafið ofninn í 100-120°C og látið malla í a.m.k. 3 klst. Passið að bleyta jafnt og þétt og ekki láta þorna. Hækkið hitann í lokin til þess að ná upp skorpu.
- Reykið og eldið rifin í reykofni eða smoker. Eldið í 100-120°C hita í 3 klst. Takið rifin að því loknu og stráið púðursykri, salti og pipar á bitann. Vefjið í álpappír eða sérstakan smjörpappír og hendið aftur inn í hitann í 1 klst.
- Þegar Klúbbur matreiðslumeistara hélt hátíðarkvöldverð um áramót voru nautarif frá Hvammi fyrir valinu. Þá voru þau sett í saltpækil í um 15 klst. og síðan sous-viduð á 79°C í 15-20 klst. Eftir það voru rifin kæld niður, beinin tekin af og bitarnir grillaðir á háum hita og penslaðir með unagi-gljáa. Skoðið nánar upplýsingar um aðferðina og uppskriftina hér.
Ef búið er að frysta nautakjöt þá er gott að gefa sér góðan tíma í að afþíða kjötið í kæli. Mikilvægt er að taka út úr kæli a.m.k. klukkutíma áður en eldamennskan hefst og hafa kjötið við stofuhita.

Rifin sem meðlimir í Klúbbi matreiðslumeistara elduð við hátíðarkvöldverð um áramót. Sjá lýsingu og uppskrift.

Bændurnir
Tyrfingur Sveinsson og Hulda Brynjólfsdóttir eru bændur í Lækjartúni / Tyrfingsstöðum í Ásahreppi. Þau búa með holdakýr, sauðfé og hænur ásamt því að reka ullarvinnslu. Auk þeirra starfa dóttir þeirra; Anna Guðrún og tengdasonur Þráinn að hluta til við búið ásamt Guðlaugi, Janneke og Agnesi Fríðu sem öll stökkva til þegar aðstoðar er þörf.

Tyrfingur og Hulda leggja mikla áherslu á dýravelferð og heilbrigði og að öll dýr séu sem mest í sínum náttúrulegu aðstæðum.
Tyrfingur er meistari í vélvirkjun, en Hulda er búfræðingur og kennari. Þau stunda auðgandi landbúnað á jörð sinni, þar sem aðaláherslan er lögð á að bæta jarðveginn með aðstoð jórturdýra og til þess notast þau við beitarstýringar eftir nákvæmu skipulagi.
Þau reka fyrirtækið Sveitakarlinn sem selur vörur beint frá býli undir því merki og er neytendahópurinn stór og fer stöðugt stækkandi enda vilja neytendur fá heilnæmar vörur sem eru framleiddar við kjöraðstæður.

Við fóðrun gripanna á Tyrfingsstöðum er útivera og graseldi langmikilvægast. Þeim er ekki gefið korn eða fóðurbætir nema í undantekningartilvikum.

Þeir gripir sem nú koma til Matlands eru uxar sem voru geltir 6 mánaða gamlir af dýralækni og hafa gengið úti síðan. Myndir/Tyrfingsstaðir
Kjarnhiti nautakjöts
Lítið steikt / 52-55° Lítið miðlungs / 55-60° Miðlungs / 60-65° Miðlungs mikið / 65-69° Mikið steikt / 71-75°
Næringarinnihald M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu nautakjöti:
Orka: 765 kJ, 183 kcal.
Prótein: 24,3 g
Fita: 9,5 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4 g og ómettaðar 4,2 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0
Aðrar upplýsingar
Kjötið frá Tyrfingsstöðum er er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.
Innihald: Nautarif af holdauxum, ungnautakjöt
Upprunaland: Ísland. Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Tyrfingsstöðum
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is



Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.