Gleðilegt sumar kæru lesendur og viðskiptavinir. Matland fagnar deginum alveg sérstaklega þar sem við erum eins árs í dag.Í tilefni afmælisins bjóðum við upp á 20% afslátt á grillpakkanum okkar vinsæla ásamt ferskum sirloin- og roastbeefsteikum frá Litla-Ármóti. Meyrara kjöt er vandfundið. Tilboðið gildir til miðnættis á föstudag.Afhendum skínandi glöð á föstudag og…
Fréttir
Matland býður grænmetiskassa í hverri viku þar sem eru á bilinu 8-11 tegundir af grænmeti hverju sinni. Allt það ferskasta og nýjasta sem er í boði á markaðnum. Frá og með grænmetiskassa #16, sem dreift verður daginn fyrir sumardaginn fyrsta, munum við bjóða endrum og eins upp á eina tegund af 2. flokks grænmeti sem…
Á Litla-Ármóti í Flóahreppi búa þau Hrafnhildur Baldursdóttir og Ragnar Finnur Sigurðsson ásamt þremur börnum sínum. Á bænum er nýlegt fjós þar sem er framleidd mjólk og kjöt. Mjólkurkýrnar eru ríflega 60 talsins en að auki hafa þau alið nautkálfa í sláturstærð í nokkur ár. Uxakjöt frá Litla-Ármóti er nú fáanlegt á Matlandi og verður…
Uxakjöt frá Reykjahlíð á Skeiðum er komið í sölu á Matlandi. Uxakjöt er af nautum sem eru gelt um 6 mánaða aldur. Kjötið þykir mjög meyrt og vel fitusprengt þar sem vaxtarhraði er hægari en í hefðbundnu nautaeldi. Uxarnir eru nokkuð spakir og eru eins mikið utandyra og mögulegt er.Myndir / ReykjahlíðGripirnir í Reykjahlíð…
Matland kynnir með mikilli ánægju samstarf við Sveitabúðina Unu á Hvolsvelli. Matland býður íbúum á Hvolsvelli og í nágrenni áskrift að grænmetiskössum sem verða afhentir á föstudögum í rauða bragganum við Austurveg 4. Í Sveitabúðinni Unu er hægt að fá ýmsar fjölbreyttar vörur, s.s. kjöt frá bændum úr Rangárþingi, gjafa- og prjónavörur, listmuni, handverk og…
„Við sjáum mikla möguleika til frekari sóknar,“ segir Einar Örn Aðalsteinsson framkvæmdastjóri Hnýfils á Akureyri en fyrirtækið rekur fiskvinnslu og reykingu í húsnæði sínu við Óseyri í Sandgerðisbót. Sölusvæði Hnýfils er stórt, þeir sjá flestum mötuneytum í heimabænum fyrir fiski, fyrirtækjum og skólum og selja einnig umtalsvert magn um allt Norðurland sem og Austurland. Þá…
Á bænum Tjörn á Mýrum í Hornafirði búa bræðurnir Halldór og Agnar Ólafssynir. Þeir eru ungir að árum en hafa tekið við búskap og rekstri á Tjörn. Matland selur úrvalskjöt frá þeim bræðrum.Nautabúskapurinn á Tjörn er lítill í sniðum en alls eru á þriðja tug nauta í eldi á bænum. Auk þess eru þeir…
Matland býður í fyrsta sinn upp á afhendingu á grænmetiskössum á Hellu föstudaginn 24. febrúar næstkomandi. Kaupendur á Hellu og nágrenni geta framvegis nálgast sinn kassa á föstudögum í kjötbúð Villt & alið við Þingskála 4. Til þess að fá kassa þarf að skrá sig í vikulega, tveggja vikna eða mánaðarlega áskrift. Hægt er að…
Matland hefur tekið í sölu takmarkað magn af ungnautakjöti frá Hvammi í Ölfusi sem er selt undir vörumerkinu Ölnaut. Kjötið er frábrugðið öðru nautakjöti á markaðnum fyrir þær sakir að nautin eru alin á bjórhrati, byggi og íslensku heyi alla sína ævi. Síðustu þrjá mánuðina fá þau einn til tvo lítra af bjór á dag…
Gestir í hátíðarkvöldverði Klúbbs matreiðslumeistara, sem alltaf er haldinn í byrjun árs, fengu nautarif í aðalrétt að þessu sinni. Það er svo sem ekki í frásögur færandi nema fyrir það að nautið var ættað frá búinu Hvammi í Ölfusi og alið á bjórhrati og ekta íslenskum bjór síðustu vikurnar fyrir slátrun. Sagt er að sannir…

