Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, brá undir sig betri fætinum í byrjun apríl ásamt hópi ráðuneytisfólks, og heimsótti frændur okkar í Færeyjum. Tilgangur ferðarinnar var að kynna sér fiskeldi Færeyinga og þau tækifæri og áskoranir sem tengjast atvinnugreininni.
Möguleikar í samstarfi Íslands og Færeyja voru m.a. ræddir við Magnus Rasmussen, iðnaðarráðherra Færeyja, sem fer með málefni fiskeldis og Árna Skaale sjávarútvegsráðherra. Þá heimsótti hópurinn systurstofnanir Hafrannsóknastofnunar og Fiskistofu, Havstovu og Vørn.
„Það hefur verið verið lærdómsríkt að fá innsýn í reynslu okkar góðu granna,“ var haft eftir Svandís Svavarsdóttur matvælaráðherra í frétt á vef Matvælaráðuneytisins.
„Færeyingar hafa meðal annars unnið ötullega að því að auka gæði og sjálfbærni framleiddrar vöru þannig að færeysk útflutningsframleiðsla sé í hæsta gæðaflokki og skilað þannig meiri verðmætum í þjóðarbúið. Með því að fjárfesta í rannsóknum í greininni hafa Færeyingar lagt grunn að gríðarlegum framförum,” sagði Svandís.