Lýsing
10 stk. x 140 g hamborgarar úr 100% Angus-nauti frá Stóra Ármóti í Flóa. Magninnkaup: 2 pakkar x 700 g. Samtals 1,4 kg. Kílóverð: 4.279 kr. Stykkjaverð á hverjum hamborgara er 599 krónur. Frystivara.
Hreinræktaður Aberdeen Angus
Matland býður til sölu kjöt úr hreinræktuðu Aberdeen Angus holdanauti frá Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa. Kjötgæðin eru rómuð.

Angus með yfirburði
Tilgangurinn með innflutningi fósturvísa og sæðis til Íslands er að búa til nýja blendinga Angusnauta og íslenskra gripa til að efla kjötframleiðsluna. Nú þegar sést að árangur af innflutningi erfðaefnis sýnir stórfelldar framfarir í framleiðslu nautakjöts hér á landi. Gripirnir vaxa hraðar og þurfa skemmri tíma til að ná mun betri holdfyllingarflokkun. Það þýðir aukna hagkvæmni í ræktunni, t.d. betri nýtingu á fermetra í gripahúsum, minni fóðurnotkun og vinnu við hvern grip.

Aðrar upplýsingar
Kjötið frá Stóra-Ármóti er er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.
Innihald: Kjöt af 100% angus-holdanauti, brisket og rif – Hamborgarar, 20-25% feitir.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Stóra-Ármóti
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.