Lýsing
Nautatunga úr ungnauti.
Kílóverð: 2.490 kr.
Nautatungurnar eru frá sunnlenskum kúa- og nautabúum.
Frystivara.
Hvernig er best að elda nautatungu?
Það er kjörið að hægelda nautatungu við 90°C í 12 klukkustundir ásamt nautasoði, gulrótum og lauk. Annað hvort sous vide eða í steikarfati í ofni. Ef tungurnar eru einfaldlega soðnar í vatni þá þarf ekki meira en salt, lauk og gulrætur og 3-4 klukkustunda suðu til að ná þeim vel mjúkum.
Mikilvægast er við lok eldunar að fletta skinninu af tungunni því það er seigt og hefur e.t.v. ekki lystuga áferð í hugum allra. Gott að sneiða í þunnar sneiðar og snæða eins og annað kjöt.
Ef búið er að frysta nautakjöt þá er gott að gefa sér góðan tíma í að afþíða kjötið í kæli.
Aðrar upplýsingar
Kjötið er unnið og pakkað hjá Villt og alið á Hellu.
Innihald: Ungnautakjöt – nautatungur.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Suðurlandi.
Framleiðandi: Villt og alið.
Sláturhús: Sláturhús SS á Selfossi og Sláturhúsið á Hellu.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.