Lýsing
Nautgripahakk úr Aberdeen Angus kvígu frá Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa. Magninnkaup: 5 pakkar x 500 g. Samtals 2,5 kg. Kílóverð: 2.940 kr. Stykkjaverð á hverjum 500 g pakka er 1.470 kr. Frystivara
Hreinræktaður Aberdeen Angus
Matland býður til sölu kjöt úr hreinræktaðri Aberdeen Angus kvígu frá Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa. Þetta er safaríkt og afar bragðgott hakk.
Gripurinn var látinn hanga í 18 daga til meyrnunar áður en hann var unninn í kjötvinnslu Villt & alið á Hellu.
Angus með yfirburði
Aberdeen Angus er heimsþekkt kjötframleiðslukyn sem nú ryður sér til rúms á Íslandi. Tilgangurinn með innflutningi fósturvísa og sæðis til Íslands er að búa til nýja blendinga Angusnauta og íslenskra gripa til að efla kjötframleiðsluna. Nú þegar sést að árangur af innflutningi erfðaefnis sýnir stórfelldar framfarir í framleiðslu nautakjöts hér á landi. Gripirnir vaxa hraðar og þurfa skemmri tíma til að ná mun betri holdfyllingarflokkun. Það þýðir aukna hagkvæmni í ræktunni, t.d. betri nýtingu á fermetra í gripahúsum, minni fóðurnotkun og vinnu við hvern grip.
Kvígur og kýr á sumarbeit við kynbótastöðina á Stóra-Ármóti.

Það er álit sérfræðinga að aukin blöndun Angus-erfðaefnis inn í íslensku ræktunina geti gert íslenska nautakjötsframleiðslu að arðbærari atvinnugrein en hún er í dag. Kjötgæði munu batna og varan þannig betur í stakk búin að mæta samkeppni að utan.
Aðrar upplýsingar
Kjötið frá Stóra-Ármóti er er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.
Innihald: Kvígukjöt, hakk, 8-12% feitt.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Stóra-Ármóti
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: SS á Selfossi
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.