Lýsing
Bændurnir
Stefán Geirsson og Silja Rún Kjartansdóttir búa í Gerðum í Flóa ásamt dætrum sínum. Þar á bæ byggir búreksturinn aðallega á mjólkurframleiðslu en nautakjötsframleiðsla hefur verið snar þáttur í rekstrinum síðustu 10 ár. Samhliða eldi nauta af mjólkurkúakyni er lítil hjörð gripa af Aberdeen Angus stofni til að auka framboð á gæðagripum til slátrunar.

Fallegir Angus holdagripir úti á túni. Aberdeen Angus eru rómaðir fyrir gott skap og þægilegri í umgengni en ýmis önnur nautgripakyn. Myndir / Bændur í Gerðum

Sláttur í Flóa. Lykillinn að góðu nautaeldi er að vera með orku- og næringarríkt heimaaflað fóður.
Næringarinnihald
M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu nautakjöti:
Orka: 765 kJ, 183 kcal.
Próten: 24,3 g
Fita: 9,5 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4 g og ómettaðar 4,2 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0
Aðrar upplýsingar
Kjötið er af kvígum, Angus-holdagripum, frá bænum Gerðum í Flóa og er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.
Innihald: Mjaðmasteik af Angus frá Gerðum.
Upprunaland: Ísland, slátrað og unnið á Íslandi.
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is



Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.