Fersk Tomahawksteik af grasfóðruðum ungnautum frá Holti

Price range: 8.395 kr. through 12.635 kr.

Tomahawk-steik af ungnautum frá bænum Holti í Álftaveri í Vestur-Skaftafellssýslu. Skrokkarnir fengu að hanga í 14 daga sem gerir kjötið meyrara fyrir vikið. Fallegt kjöt og meyrt. Ribeye með handfangi!

Kælivara. Best fyrir 1. sept.

Kílóverð er 8.690 krónur.  Veldu þá stærð sem hentar þér í fellivalinu hér undir og settu svo í körfuna.

Við sendum þér kjötið gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Einnig hægt að sækja á Pikkolóstöðvarnar. Við sendum sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Má bjóða þér sósu?

Verð vöru: 8.395 kr.
Aukahlutir:
Samtals:

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , , , Merkimiðar: , Vörunúmer:62922

Lýsing

Bændurnir

Í Holti í Álftaveri í Skaftárhreppi reka tvær kynslóðir blandað bú með mjólkurkýr, sauðfé og holdagripi ásamt hrossum. Ábúendur í félagsbúinu Holti eru Konný Sif Gottsveinsdóttir, Þorbergur Jónsson, Gottsveinn Eggertsson og Svana Sigurjónsdóttir.

Nautgripir í Álftaveri.  Mynd / TB

Hvernig er best að elda Tomahawk?

Matland mælir með að grilla Tomahawksteikina og jafnvel klára í ofni ef bitinn er stór.

Kryddið eftir smekk. Matland mælir með að nota grófmulinn pipar og flögusalt frá Saltverki.

Gefið ykkur góðan tíma til að afþíða kjötið í kæli ef það er frosið. Mikilvægt er að taka út úr kæli a.m.k. klukkutíma áður en eldamennskan hefst og hafa kjötið við stofuhita.

Ef ekki viðrar fyrir útigrillun á Tomahawksteikinni er gott að hefja steikingu á mjög heitri pönnu, loka kjötinu með því að steikja upp úr nautatólg, smjöri og olíu. Bakið síðan í ofni við 180°C þar til kjarnhiti nær 53-55°C. Látið kjötið hvíla við stofuhita í 10 mínútur áður en það er skorið í sneiðar.

Ef pönnusteikt eingöngu þá er gott að hita pönnuna upp í meðalhita. Berið lítilsháttar olíu á steikina og saltið og piprið eftir smekk. Hækkið þá hitann á pönnunni og skellið steikinni á ásamt vænni smjörklípu. Snúið steikinni þegar hún er orðin vel brúnuð. Mælt er með því að nota kjöthitamæli og hætta þegar hann sýnir 52°C fyrir medium-rare. Hvílið steikina í 5-7 mínútur eftir eldun áður en hún er borin fram.

Við grillun er fylgt sömu ráðum en mikilvægt að nota kjöthitamæli til að fylgjast með hitastiginu. Munið að steikin heldur áfram að eldast í hvíldinni og því ráðlegt að hætta grillun aðeins áður en æskilegu kjarnhitastigi er náð.

Kjarnhiti nautakjöts

Lítið steikt / 52-55°
Lítið miðlungs / 55-60°
Miðlungs / 60-65°
Miðlungs mikið / 65-69°
Mikið steikt / 71-75°

Næringarinnihald

M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu nautakjöti:
Orka: 765 kJ, 183 kcal.
Próten: 24,3 g
Fita: 9,5 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4 g og ómettaðar 4,2 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0

Aðrar upplýsingar

Kjötið er af ungnautum frá bænum Holti í Álftaveri og er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.

Innihald: Tomahawk-steik af ungnautum.
Upprunaland: Ísland, slátrað og unnið á Íslandi.
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Tomahawk, þyngdir

966 g, 1080 g, 1146 g, 1212 g, 1254 g, 1288 g, 1318 g, 1332 g, 1368 g, 1384 g, 1396 g, 1454 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Fersk Tomahawksteik af grasfóðruðum ungnautum frá Holti”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2026. Matfélagið ehf. Hrísateig 47, 105 Reykjavík. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard