Skip to content Skip to footer

Ferskt kálfa-milanese frá Stóra-Fjarðarhorni

Price range: 3.004 kr. through 4.423 kr.

Ferskur hryggvöði á beini frá Stóra-Fjarðarhorni á Ströndum. Þetta er hið eina sanna kálfa-Milanese! Notið kjöthamar til að fletja út steikina eins og þið viljið hafa hana. Hveiti, egg og brauðraspur og þið eruð komin á vit ævintýranna. Steikið í olíu á pönnu og berið svo fram með kartöflum, súrkáli eða öðru sem hugurinn girnist.

Alikálfarnir frá Stóra-Fjarðarhorni eru af íslensku kyni og voru rúmlega 7 mánaða á efsta degi. Kjötið fékk að hanga í viku fram að vinnslu. Meyrt og ljóst kjöt.

Kjötið er ferskt og fullmeyrnað. Takmarkað magn. Best fyrir 15. feb. 

Þú velur þá stærð það sem hentar þér í fellivalinu hér undir. 3 steikur í hverjum pakka. Kílóverð: 6.890 kr. Athugið að um hreint kjöt er að ræða – ekki í brauðraspi. 

Matland sendir þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Matland sendir sms þegar varan er tilbúin til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Má bjóða þér sósu?

Verð vöru:3.004 kr.
Aukahlutir:
Samtals:

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , , , Merkimiðar: , Vörunúmer:75589

Lýsing

Bændurnir

Bændurnir á Stóra-Fjarðarhorni leggja mikla áherslu á fóðrun sinna gripa sem er lykillinn að því að framleiða gæðakjöt. Gripirnir fá fyrsta flokks hey og aðgang að kjarnfóðri. Þau fá líka töluvert af umfram-grænmeti sem framleitt er á búinu.


Á á Stóra-Fjarðarhorni eru nokkur holdanaut sem eru engin smásmíði. Mynd / Guðfinna Lára.

Sjálfbærni og engin sóun

Bændurnir á Stóra-Fjarðarhorni taka þátt í verkefninu Loftslagsvænn landbúnaður sem Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins hefur umsjón með ásamt fleirum. Í því felst að bændurnir gera loftslagsáætlun sem miðar að því að gera búskapinn sem mest sjálfbæran eins og hægt er og sóa sem minnstu.


Á Stóra-Fjarðarhorni búa bændurnir Ágúst Helgi Sigurðsson og Guðfinna Lára Hávarðardóttir með börnum sínum. Mynd / Ásta Þórisdóttir.

Næringarinnihald

M.v. 100 grömm af nautahryggvöðva:
Orka: 739 kJ, 177 kcal.
Próten: 21,5 g
Fita: 10,1 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4,2 g og ómettaðar 5,2
Kólestról: 66 mg
Kolvetni: 0

Varan

Kjötið frá Stóra-Fjarðarhorni er unnið á Hellu hjá kjötiðnaðarmönnum hjá fyrirtækinu Villt og alið ehf.

Kælivara.

Innihald: Kálfahryggvöðvi – MIlanese
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Stóra-Fjarðarhorni í Kollafirði á Ströndum.
Framleiðandi: Villt og alið ehf.
Sláturhús nr. A067 – Sláturhús Hellu hf.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Milanese - þyngdir

436 g, 478 g, 484 g, 500 g, 506 g, 508 g, 534 g, 540 g, 546 g, 546 g, 558 g, 560 g, 564 g, 564 g, 564 g, 584 g, 598 g, 628 g, 630 g, 642 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Ferskt kálfa-milanese frá Stóra-Fjarðarhorni”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…