Lýsing
Eldunarleiðbeiningar
Þýðið bollurnar í ísskáp. Bollurnar eru fulleldaðar. Hitið í ofni við 170-180°C í 15-20 mínútur þangað til bollurnar eru heitar í gegn. Það er líka í góðu lagi að skella bollunum á pönnu ásamt lauksmjöri og steikja þar til þær eru orðnar heitar. Í örbylgjuofni er hitunartíminn á bilinu 3-4 mínútur en fer eftir styrk.

Lauksmjör
Lauksmjör er klassískt meðlæti með fiskibollum, hvort sem þær eru heimagerðar eða keyptar.
3-4 laukar
100 g smjör
Flysjaðu laukinn og saxaðu hann frekar gróft eða skerðu hann í tvennt og helmingana síðan í sneiðar. Bræddu smjörið við vægan hita í potti eða á djúpri pönnu, settu laukinn út í og láttu krauma rólega þar til laukurinn er orðinn mjög mjúkur – það gæti tekið 10-15 mínútur og þess vegna er best að byrja á þessu áður en bollurnar eru settar á pönnuna. Laukurinn má gulna dálítið en alls ekki brúnast eða brenna. Hrærðu í honum öðru hverju. Heimild / Nanna Rögnvaldardóttir
Sumir bræða meira af smjöri og þeyta örlítið af volgu vatni þið það með písk. Við það verður feitin þynnri og ögn froðukenndari.
Hnýfill á Akureyri
Fiskverkunin Hnýfill var stofnuð i desember 1995 og hafði aðsetur á Skipatanga á Akureyri. Árið 1999 festu eigendur Hnýfils kaup á 480 m2 húsi að Óseyri og fluttu inn í húsnæðið um áramótin 2000. Húsnæðið var þá 15 ára gamalt, mjög vandað og snyrtilegt hús til allrar matvælavinnslu. Markmið félagsins er reyking hverskyns sjávarafurða og sala þeirra, einnig saltaðra, þurrkaða og nýrra fiskafurða á nærmarkaði.
Vörurnar sem Hnýfill selur og framleiðir á smásölu- og mötuneytamarkað í reykvörulínunni eru: kofareyktur silungur, lax, og rauðmagi, hrefnukjöt en einnig reykt ýsa og þorskur. Einnig framleiðir fyrirtækið talsvert af gröfnum laxi.
Innihaldslýsing
Ýsa / hvítur fiskur (58%), MJÓLK, laukur, HVEITI, kartöflumjöl, SMJÖR (RJÓMI, salt), EGG, jurtaolía (repju-, sólblóma-, og vínberjaolía, kóríander, kjarnaolía, D-vítamín), grænmetiskraftur (salt, maltódextrín, sterkja, ger, grænmeti (laukur, gulrætur, blaðlaukur), bragðefni, gulrótasafi, krydd), pipar.
Neytist innan 4 daga frá því að umbúðir eru opnaðar.
Frystivara. Geymist við -18°C.
Næringargildi í 100 g.:
Orka 690 kJ/165 kkal
Fita 7,7 g
-þar af mettuð 2,6 g
Kolvetni 8,9 g
-þar af sykurtegundir 1,0 g
Trefjar 0,4 g
Prótein 15 g
Salt 0,4 g