Lýsing
Lambakjötið frá Árdal fékk að hanga í 5 daga eftir slátrun. Við það verður kjötið meyrara en léttist að sama skapi þar sem vökvi gufar upp úr því.
Bændurnir
Bærinn Árdalur er í Kelduhverfi í Norður-Þingeyjasýslu. Þar búa hjónin Salbjörg Matthíasdóttir og Jónas Þór Viðarsson með börnum sínum þremur þeim Heiðnýju, Sigursveini og Hrafney. Á bænum eru um 120 vetrarfóðraðar kindur, átta hestar og tveir hundar
Árið 2021 byggðu bændurnir kjötvinnslu á jörðinni sem fékk nafnið Árdalsafurðir. Með komu hennar hafa Salbjörg og Jónas selt vörur sínar með upprunamerkingum beint frá býli. Þau vinna bæði utan bús en Salbjörg er í 90% starfi hjá Landgræðslunni og Jónas er í hlutastarfi sem tónlistakennari hjá Tónlistarskóla Húsavíkur ásamt því að stunda smíðar.
Á hverju ári fæðast á bilinu 180-190 lömb í Árdal og nýtur fjölskyldan þess að hugsa um kindurnar, taka þátt í samfélaginu í gegnum búskapinn og vinna afurðirnar sjálf. Auk sauðfjárræktarinnar í Árdal stunda Salbjörg og Jónas hestamennsku; ríða út og fara í hestaferðir á sumrin.
Salbjörg Matthíasdóttir, bóndi í Árdal ásamt hrútinum Vin sem gaf einstaklega kjötmikil og væn lömb. Mynd / Árdalur
Grænlamb – sauðfé sem eingöngu er beitt á vel gróið land
Bændurnir í Árdal markaðssetja vörurnar sínar undir vörumerkinu “Grænlamb”. Notendur merkisins eru framleiðendur sauðfjárafurða í Kelduhverfi og söluaðilar þeirra. Einungis afurðir sauðfjár sem gengur í sameiginlegum beitilöndum Keldhverfinga eru markaðssettar og seldar undir merki Grænlambs. Lömb merkt Grænlambi hafa öll verið á vel grónu beitilandi.
Kelduhverfið er rauðlitað á Íslandskortinu. Bærinn Árdalur er mitt á milli Húsavíkur og Kópaskers. Mynd / Grænlamb
Yfir 90% beitilands Keldhverfinga er vel gróið og stendur Grænlamb fyrir afurðir af grónu landi.
- Beitilandið er víðáttumikið og að mestu undir 300 m hæð yfir sjó.
- Hver kind hefur um 18 hektara til umráða fyrir sig.
- Um 9 þúsund fermetrar af grónu landi eru fyrir hvert kíló framleidds lambakjöts á svæðinu.
- Heiðar Kelduhverfis eru nánast eingöngu mólendi með ríkjandi lynggróðri, kjarri og birkiskógi, sem einkennist af hraunklöppum og hraundröngum á yfirborði.
Sauðfé að hausti. Mynd / Áskell Þórisson
Varan
Innihald í hvítlaukskryddblöndu á lambakjötinu: Hvítlaukspipar, kjötkraftur, sítrónupipar, paprika, salt, vatnsrofin jurtaprótein, repjuolía, bragðefni, krydd.
Næringargildi í 100g:
Orka: 703 g / 168 kkal
Fita: 10,4 g
Kolvetni: 0 g
Prótein: 18,7 g
Kælivara.
Innihald: Grillkjöt – frampartssneiðar með hvítlaukskryddblöndu.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Árdal í Kelduhverfi
Framleiðandi: Kjötvinnslan Árdalsafurðir
Sláturhús: Sláturhúsið á Kópaskeri
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.