Geitalæri frá Eskiholti
8.099 kr. – 11.011 kr.Price range: 8.099 kr. through 11.011 kr.
Geitalæri frá Eskiholti í Borgarbyggð.
Geitakjöt svipar til lambakjöts en hefur þó sitt sérstaka bragð sem mörgum líkar afar vel. Geitakjöt er matreitt með svipuðum hætti og lambakjöt. Vegna þess að lærin eru fremur fitulítil þarf að passa að ofelda þau ekki og að þau þorni á meðan eldamennsku stendur.
Kjötið er verkað í vinnslunni á Grímsstöðum í Reykholtsdal. Frystivara.
Þú velur þína stærð með því að velja í fellivalsglugganum hér undir. Kílóverð er 6.500 krónur.
Við sendum þér kjötið gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.