Skip to content Skip to footer

100% Angus ungnautahakk frá Stóra-Ármóti – 5 pakkar

8.725 kr.

Hakk af Aberdeen Angus nautgrip frá Stóra-Ármóti í Flóa. Kjötið er á bilinu 8-12% feitt. Gripurinn var látinn hanga í 14 daga áður en hann var unninn. Það þýðir meyrara kjöt. Takið eftir að það er lítill vökvi sem fer úr hakkinu við steikingu – gæðavara sem unun er að nota í matreiðslu.

Alls 5 pk. x 500 g. Samtals 2,5  kg. Kílóverð: 3.490 kr. Frystivara. 

Matland sendir þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til okkar á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir pöntun eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum SMS til að minna á þegar pöntun er tilbúin. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

18 á lager

Flokkar: , Merkimiðar: , , Vörunúmer:28697

Lýsing

Nautahakk úr hreinræktuðu Aberdeen Angus-nauti frá Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa. Magninnkaup: 5 pakkar x 500 g. Samtals 2,5 kg. Kílóverð: 3.490 kr. Stykkjaverð á hverjum 500 g pakka er 1.745 kr. Frystivara

Hreinræktaður Aberdeen Angus
Matland býður til sölu kjöt úr hreinræktuðu Aberdeen Angus nauti frá Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa. Þetta er safaríkt og afar bragðgott hakk.

Gripurinn var látinn hanga í 14 daga til meyrnunar áður en hann var unninn í kjötvinnslu Villt & alið á Hellu.

Angus með yfirburði
Aberdeen Angus er heimsþekkt kjötframleiðslukyn sem nú ryður sér til rúms á Íslandi. Tilgangurinn með innflutningi fósturvísa og sæðis til Íslands er að búa til nýja blendinga Angusnauta og íslenskra gripa til að efla kjötframleiðsluna. Nú þegar sést að árangur af innflutningi erfðaefnis sýnir stórfelldar framfarir í framleiðslu nautakjöts hér á landi. Gripirnir vaxa hraðar og þurfa skemmri tíma til að ná mun betri holdfyllingarflokkun. Það þýðir aukna hagkvæmni í ræktunni, t.d. betri nýtingu á fermetra í gripahúsum, minni fóðurnotkun og vinnu við hvern grip.


Kvígur og kýr á sumarbeit við kynbótastöðina á Stóra-Ármóti.

Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa. Hér eru kynbótagripirnir aldir við fullkomnustu aðstæður. Myndir / TB

Aðrar upplýsingar

Kjötið frá Stóra-Ármóti er er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.
Innihald: Nautahakk af 100% Angus, 8-12% feitt.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Stóra-Ármóti
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Magn

3kg., 4kg.

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “100% Angus ungnautahakk frá Stóra-Ármóti – 5 pakkar”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2025. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard