Skip to content Skip to footer

Kálfasnitsel frá Stóra-Fjarðarhorni

Price range: 2.415 kr. through 2.944 kr.

Kálfasnitsel frá Stóra-Fjarðarhorni á Ströndum. Í hverjum pakka eru á bilinu 3-5 snitselsneiðar. Ef þú vilt þynnri sneiðar þá er bara að draga fram kjöthamarinn.

Athugið að um hreint snitsel er að ræða (ekkí í brauðhjúp). Það er líka hægt að pönnusteikja. Ef þú vilt læra að útbúa ekta snitselveislu með raspi og “alles” – kíktu þá hingað.

Alikálfarnir frá Stóra-Fjarðarhorni eru af íslensku kyni og voru rúmlega 7 mánaða á efsta degi. Kjötið fékk að hanga í viku fram að vinnslu. Meyrt og ljóst kjöt.

Kjötið er frosið og fullmeyrnað. Takmarkað magn. 

Þú velur þá stærð það sem hentar þér í fellivalinu hér undir. Kílóverð: 4.990 kr.

Matland sendir þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Matland sendir sms þegar varan er tilbúin til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , , Merkimiðar: , Vörunúmer:75663

Lýsing

Hvernig á að steikja snitsel?

Björn Teitsson deilir ráðum hér með lesendum Matlands hvernig á að útbúa hið fullkomna snitsel.

Katla Gunnarsdóttir segir hér frá því hvernig Danir vilja hafa sitt snitsel.


Meðlæti með snitzeli er gjarnan kartöflur eða kartöflusalat, sýrt kál og ekki má gleyma sítrónunni.

Bændurnir

Bændurnir á Stóra-Fjarðarhorni leggja mikla áherslu á fóðrun sinna gripa sem er lykillinn að því að framleiða gæðakjöt. Gripirnir fá fyrsta flokks hey og aðgang að kjarnfóðri. Þau fá líka töluvert af umfram-grænmeti sem framleitt er á búinu.


Á á Stóra-Fjarðarhorni eru nokkur holdanaut sem eru engin smásmíði. Mynd / Guðfinna Lára.

Sjálfbærni og engin sóun

Bændurnir á Stóra-Fjarðarhorni taka þátt í verkefninu Loftslagsvænn landbúnaður sem Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins hefur umsjón með ásamt fleirum. Í því felst að bændurnir gera loftslagsáætlun sem miðar að því að gera búskapinn sem mest sjálfbæran eins og hægt er og sóa sem minnstu.


Á Stóra-Fjarðarhorni búa bændurnir Ágúst Helgi Sigurðsson og Guðfinna Lára Hávarðardóttir með börnum sínum. Mynd / Ásta Þórisdóttir.

Næringarinnihald

M.v. 100 grömm af nautahryggvöðva:
Orka: 739 kJ, 177 kcal.
Próten: 21,5 g
Fita: 10,1 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4,2 g og ómettaðar 5,2
Kólestról: 66 mg
Kolvetni: 0

Varan

Kjötið frá Stóra-Fjarðarhorni er unnið á Hellu hjá kjötiðnaðarmönnum hjá fyrirtækinu Villt og alið ehf.

Kælivara.

Innihald: Kálfasnitsel
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Stóra-Fjarðarhorni í Kollafirði á Ströndum.
Framleiðandi: Villt og alið ehf.
Sláturhús nr. A067 – Sláturhús Hellu hf.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Snitsel, þyngdir

484 g, 490 g, 492 g, 496 g, 498 g, 498 g, 498 g, 500 g, 502 g, 504 g, 504 g, 506 g, 508 g, 510 g, 514 g, 514 g, 516 g, 524 g, 526 g, 526 g, 526 g, 526 g, 528 g, 532 g, 534 g, 534 g, 534 g, 536 g, 538 g, 540 g, 540 g, 542 g, 544 g, 544 g, 550 g, 550 g, 552 g, 554 g, 556 g, 556 g, 558 g, 558 g, 560 g, 572 g, 590 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Kálfasnitsel frá Stóra-Fjarðarhorni”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…