Lýsing
Framleiðendurnir

Kombucha Iceland er sprottið af ástríðu hjónanna Rögnu og Manuels. Manuel ólst upp í sveit í Kúbu þar sem foreldrar hans gerjuðu hefðbundna drykki úr hráefnum úr nærumhverfinu, meðal annars hrísgrjónum og villtum plómum. Sú reynsla vakti hjá honum forvitni um hvernig þessir dularfullu drykkir urðu til.
Eftir að hann flutti til Íslands árið 2006 hóf hann doktorsnám í efnafræði. Þegar hann fór að leita sér að afslappandi áhugamáli samhliða náminu lá heimabrugg beinast við. Manuel heillaðist svo af flóknu gerjunarferlunum að hann lagði uppskriftabækurnar til hliðar og fór að þróa eigin uppskriftir. Í leit sinni að nýju hráefni rakst hann á hina aldagömlu hefð að gerja te og búa til kombucha.
Heillaður jafnt af sögunni sem vísindunum á bak við kombucha fór Manuel að drekka það til að auka orku og einbeitingu á löngum námsdögum – og það virkaði. Eftir útskrift vissi hann að þetta væri einstakur drykkur sem hann vildi deila með öðrum. Ragna, sem er menntaður mannfræðingur, lagði mikla áherslu á að brugga kombucha úr íslensku vatni og hráefnum sem eiga rætur sínar í íslenskri náttúru. Þannig varð fyrsta atvinnurekna kombucha-brugghús Íslands til.

Aðrar upplýsingar
Innihald: Kombucha, gerjaður drykkur. Vatn, grænt te, lífrænt vottaður sykur fyrir gerinn, kombuchga-kúltúr (lifandi bakteríur og ger).
Upprunaland: Ísland.
Framleiðandi: Kombucha Ísland
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is








Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.