Kryddsíld frá Djúpavogi – 2,8 kg fata

4.390 kr.

Matland býður upp á kryddsíld frá Ósnesi á Djúpavogi. Alls 1,1 kg af kryddsíld í bitum í 2,8 kg fötu.

Síldin frá Ósnesi ehf. á Djúpavogi hefur fengið góðar viðtökur neytenda á síðustu árum og vinsældir hennar eru miklar.

Kælivara. Verð kr. 4.390 kr/fatan.

Síldin er afhent hjá Matlandi á Hrísateig 47, daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Fyrsta sending kemur miðvikudaginn 11. nóv. í bæinn. Við látum vita með SMS til að minna viðskiptavini á að sækja þegar varan er tilbúin til afgreiðslu. Keyrum heim gegn vægu gjaldi. Líka hægt að sækja á afhendingarstaði Pikkoló. Sendum líka út á landsbyggðina á allar vöruafgreiðslur Samskipa fyrir 1.950 krónur.

6 á lager

Flokkar: , Merkimiðar: , , , Vörunúmer:19986

Lýsing

Framleiðandinn

Ósnes ehf. er lítið fjölskyldufyrirtæki á Djúpavogi sem stofnað var árið 1996. Ósnes hefur í gegnum tíðina verið í ýmsum verkefnum tengdum sjávarútvegi, s.s. saltfiskverkun, áframeldi á þorski, ígulkerjaveiðum og stundað síldarverkun síðasta áratuginn. Síldin er verkuð eftir gamalli fjölskylduuppskrift og einungis er verkað úr úrvals hráefni frá Loðnuvinnslunni hf. Fáskrúðsfirði.

Innihald

Vatn, síld, sykur og krydd.

Kælivara 0-4°C.

Þyngd: 2,8 kg, þar af 1,1 kg síld.

Næringargildi í 100 g:

Orka: 940 kj/223kcal
Fita: 8,6 g, þ.a. mettuð fita 2,04 g
Kolvetni: 24,5 g, þ. A. Sykur 24,5 g
Prótein: 12,1 g
Salt: 2,5 g.

Vilt þú baka eigið rúgbrauð með síldinni?

Laufey Rós deilir uppskrift að rúgbrauði með lesendum Matlands. Sjá hér.

 

Frekari upplýsingar

Þyngd 2,8 kg

Þér gæti einnig líkað við…

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2026. Matfélagið ehf. Hrísateig 47, 105 Reykjavík. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard