Skip to content Skip to footer

Gæðaflokkað lambakjöt frá Miðhúsum á Ströndum – heilir skrokkar

Price range: 35.964 kr. through 52.059 kr.

UPPSELT. FYRSTA SLÁTRUN UPPSELD. MEIRA SÍÐAR. Matland býður upp á heila skrokka af lambakjöti frá bænum Miðhúsum á Ströndum sem hefur fengið að hanga í 5 daga. Það er fátt betra en að eiga nóg af lambakjöti í frystikistunni. Gæðalamb frá bændunum Viðari Guðmundssyni og Barböru Guðbjartsdóttur.

Í fyrsta sinn hjá Matlandi eru skrokkarnir seldir eftir flokkun. Hægt er að velja um þrenns konar flokkun samkvæmt EUROP-kerfinu og tvenns konar fituflokkun (2: Lítil fita. Síðufita <8 mm og 3: Eðlileg fita. Síðufita <11 mm). Í boði eru flokkarnir E, U og R:

  • E: Ágæt holdfylling. Allar útlínur mjög kúptar.
  • U: Mjög góð holdfylling. Útlínur að mestu kúptar.
  • R: Góð holdfylling. Útlínur að mestu beinar.

Þú velur fyrst hvernig þú vilt fá skrokkinn sagaðan, síðan þyngd og flokkun (holdfyllingu og fitu). Nánari upplýsingar um flokkunina er að finna neðar hér á síðunni.

Boðið er upp á 4 tegundir af sögun:

  • A. Bæði læri heil, hryggur heill, rest í sneiðar og súpukjöt.
  • B. Eitt læri heilt, eitt í sneiðum, hryggur heill, einn frampartur heill og rest í sneiðar og súpukjöt.
  • C. Allur skrokkurinn sagaður í sneiðar.
  • D. Sjö parta sögun: Tvö læri, hryggur, frampartur í tvennt og tvö heil slög. Engar smærri sneiðar.

Kílóverð er eftirfarandi:
E-flokkur: 2.590 kr./kg m. vsk.
U-flokkur: 2.390 kr./kg m. vsk.
R-flokkur: 2.220 kr./kg m. vsk.
O-flokkur: Ekki í boði
P-flokkur: Ekki í boði

Skrokkarnir eru 15,1-20,9 kg að þyngd.

Þú velur í fellivalinu hér undir hvernig saga á skrokkinn og síðan þyngd og flokkun.

Afhending

Lambaskrokkarnir verða afhentir mánudaginn 6. október á afhendingarstað Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík eftir kl. 14.00 eða sendir heim að dyrum á höfuðborgarsvæðinu þann dag gegn vægu gjaldi, kr. 1.450. Matland sendir SMS þegar kjötið er klárt til afhendingar. Keyrum líka án endurgjalds á afgreiðslu Samskipa sem senda kjötið hvert á land sem er fyrir einungis 1.950 kr.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , Merkimiði: Vörunúmer:65092

Lýsing

Afhending mánudaginn 6. október eftir kl. 14.00

Varan

Kjötið hefur fengið að hanga í 5 daga. Við það að hanga verður kjötið meyrara.

Lambakjötið kemur niðursagað í kassa og er lausfryst. Viðskiptavinur þarf sjálfur að setja í minni umbúðir kjósi hann svo. Kjötið er frosið.

Bændurnir

Matland fær lambakjötið frá bænum Miðhúsum á Ströndum. Þar búa hjónin Viðar Guðmundsson og Barbara Guðbjartsdóttir. Þau eiga fimm börn en einungis eitt þeirra er eftir á heimilinu. Hin eldri eru ýmist alflutt eða hálfflutt í burtu og stunda nám og vinnu fjarri heimahögunum. Auk þeirra Viðars, Barböru og drengjanna tveggja býr Guðmundur Kristinn faðir Viðars í næsta húsi.


Barbara og Viðar á sólríkum degi í sveitinni. Myndir / Úr einkasafni


Þorsteinn Óli, hrúturinn Skari Kveiksson og Unnur Erna.

Fjölskyldan flutti norður á Strandir haustið 2007 úr Borgarfirðinum og tók við sauðfjárrekstri í Miðhúsum. Í dag eru ríflega 500 vetrarfóðraðar ær í Miðhúsum auk þess sem Viðar og Barbara hafa komið sér upp litu kálfaeldi. Kálfarnir eru einstaklega blíðir og spakir, fá klapp svo gott sem daglega og Barbara syngur fyrir þá reglulega. Barbara og Viðar leggja mikla rækt í að hafa kálfana spaka og rólega því það skilar sér margfalt í kjötgæðum. Kálfarnir eru eingöngu aldir á grasi og hið sama má segja um sauðféð. Þær fá þó smá fóðurbæti eftir burð og þar til þær fara út í vorið. Ánum er sýnd hlýja og fá þær klapp og söng líka líkt og nautin og eru þær margar hverjar spakar og miklir karakterar. Hestar eru í Miðhúsum, flestir í eigu Guðmundar Kristins og einnig eru á bænum nokkrir border collie smalahundar.


Bærinn Miðhús í Kollafirði á Ströndum.

Gæðaflokkun á lambakjöti

Smekkur neytenda er misjafn en almennt þykir eftirsóknarvert að kjöt flokkist í E, U, eða R í kindakjötsmatinu EUROP. Flokkarnir sem eru í boði frá Miðhúsum eru E, U og R. Mynd: Kjötbókin/Matís

Holdfyllingaflokkar lambaskrokka
E: Ágæt holdfylling. Allar útlínur mjög kúptar.
U: Mjög góð holdfylling. Útlínur að mestu kúptar.
R: Góð holdfylling. Útlínur að mestu beinar.
O: Sæmileg holdfylling. Útlínur nokkuð hvolfar.
P: Rýr holdfylling. Útlínur allar íhvolfar eða mjög íhvolfar

Fituflokkar lambastrokka:
1: Mjög lítil fita. Síðufita <5 mm
2: Lítil fita. Síðufita <8 mm
3: Eðlileg fita. Síðufita <11 mm
3+: Mikil fita. Síðufita <14 mm
4: Mjög mikil fita. Síðufita <18 mm
5: Óhóflega mikil fita. Síðufita >18 mm

Um vörurnar

Upprunaland: Ísland
Pökkun og dreifing: Grímsstaðaket. Dreifing á höfuðborgarsvæðinu: Matland. Dreifing utan höfuðborgarsvæðisins er á vegum Samskipa.
Slátrað og unnið á Íslandi.
Sláturhús: Grímsstaðaket í Borgarbyggð.
Framleiðendur: Lambakjötið kemur frá bænum Miðhúsum á Ströndum. Slátrun og vinnsla kjötsins fer fram á Grímsstöðum í Borgarbyggð.
Sláturhús: Grímsstaðaket.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is
Afhendingarstaður fyrir þá sem sækja vöruna í Reykjavík: Matland, Hrísateig 47 í Reykjavík.

Frekari upplýsingar

Sögun

A. Bæði læri heil, hryggur heill, rest í sneiðar og súpukjöt., B. Eitt læri heilt, eitt í sneiðum, hryggur heill, einn frampartur heill og rest í sneiðar og súpukjöt., C. Allur skrokkurinn sagaður í sneiðar., D. Sjö parta sögun: Tvö læri, hryggur, frampartur í tvennt og tvö heil slög. Engar smærri sneiðar.

Þyngd og flokkun

15,1 kg – R2, 16,2 kg – R2, 16,4 kg – U2, 16,5 kg – U3, 16,6 kg – R2, 16,7 kg – U3, 16,7 kg – U2, 16,8 kg – U3, 17,2 kg – U2, 17,2 kg – U2, 17,3 kg – E3, 17,3 kg – U2, 17,6 kg – U2, 17,6 kg – U2, 17,6 kg – E2, 17,7 kg – E2, 17,8 kg – U2, 18,5 kg – U3, 18,5 kg – E2, 18,6 kg – E3, 18,7 kg – E3, 18,8 kg – U3, 18,8 kg – U3, 18,8 kg – U3, 18,9 kg – U3, 19,2 kg – E3, 19,2 kg – E3, 19,5 kg – E3, 19,6 kg – U3, 19,7 kg – U3, 19,8 kg – E3, 20,1 kg – E3, 20,3 kg – U2, 20,9 kg – E3

Þér gæti einnig líkað við…

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2025. Matfélagið ehf. Hrísateig 47, 105 Reykjavík. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard