Litlir pakkar af Angus nautahakki (8-12%) frá Vindheimum – 5 pk.

5.535 kr.

Nautahakk með 8-12% fitu frá bænum Neðri-Vindheimum í Hörgárdal. 5 pk x 300 g = 1,5 kg. Pakkarnir eru flatir og staflast vel í frysti. Engin íblöndunarefni – bara hreint hakk. Skrokkurinn fékk að hanga í 14 daga sem gerir það að verkum að það verður minni kjötsafi á pönnunni þegar hakkið er steikt. Þú finnur muninn.

Unnið hjá Villt & alið á Hellu. Frystivara.

5 pk x 300 g = 1,5 kg. Kílóverð er 3.690 krónur. Heildarverð fyrir alla 5 pakkana er 5.535 kr.

Við sendum þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

15 á lager

Lýsing

Bændurnir

Á Neðri-Vindheimum í Hörgárdal búa bændurnir Kristbjörg og Björn ásamt börnum sínum fjórum. Þar reka þau saman blandað bú með holdakúm, kindum og hrossum. Kýrnar eru allar hýstar yfir vetrartímann líkt og kindurnar. Við burð á vorin fara þær út með kálfa sína fram á haust. Bændurnir í Vindheimum hafa lagt mikla áherslu á að bæta kjötframleiðsluna á síðustu árum. Þau hafa markvisst byggt búskapinn upp með Angus-gripum sem gefur aukinn vaxtarhraða og meiri kjötgæði.


Holdagripir af Angus-kyni á Vindheimum í Hörgárdal.

Næringarinnihald

M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu nautakjöti:
Orka: 765 kJ, 183 kcal.
Próten: 24,3 g
Fita: 9,5 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4 g og ómettaðar 4,2 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0

Aðrar upplýsingar

Kjötið er af angusnauti frá bænum Neðri-Vindheimum í Hörgárdal og er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.

Innihald: Nautahakk, 8-12% feitt.
Upprunaland: Ísland, slátrað og unnið á Íslandi.
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhús Norðlenska á Akureyri.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Mínútusteikur, þyngdir

458 g, 482 g, 490 g, 490 g, 494 g, 502 g, 502 g, 512 g, 528 g, 532 g, 532 g, 532 g, 534 g, 540 g, 556 g, 572 g, 596 g, 596 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Litlir pakkar af Angus nautahakki (8-12%) frá Vindheimum – 5 pk.”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…