Litlir pakkar af hakki af grasfóðruðum Angus-uxum frá Tyrfingsstöðum – 5 pk x 300 g

5.535 kr.

Unganautahakk af grasfóðruðum Angus-uxum, holdagripum, frá Tyrfingsstöðum í Ásahreppi. Kjötið er á bilinu 8-12% feitt. Engin viðbætt aukaefni, einungis hreint hakkað kjöt. Þunnir 300 g pakkar sem eru fljótir að þiðna og raðast vel í frysti.

Gripirnir voru látnir hanga í 14 daga áður en þeir voru unnir. Það þýðir meyrara kjöt. Takið eftir að það er lítill vökvi sem fer úr hakkinu við steikingu – gæðavara sem unun er að nota í matreiðslu.

5 pk x 300 g = 1,5 kg. Kílóverð er 3.690 krónur. Heildarverð fyrir alla 5 pakkana er 5.535 kr.

Matland sendir þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir pöntun eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Líka hægt að sækja á afhendingarstaði Pikkoló. Við sendum SMS til að minna á þegar pöntun er tilbúin. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

11 á lager

Lýsing

Bændurnir

Tyrfingur Sveinsson og Hulda Brynjólfsdóttir eru bændur í Lækjartúni / Tyrfingsstöðum í Ásahreppi. Þau búa með holdakýr, sauðfé og hænur ásamt því að reka ullarvinnslu. Auk þeirra starfa dóttir þeirra; Anna Guðrún og tengdasonur Þráinn að hluta til við búið ásamt Guðlaugi, Janneke og Agnesi Fríðu sem öll stökkva til þegar aðstoðar er þörf.


Tyrfingur og Hulda leggja mikla áherslu á dýravelferð og heilbrigði og að öll dýr séu sem mest í sínum náttúrulegu aðstæðum.

Tyrfingur er meistari í vélvirkjun, en Hulda er búfræðingur og kennari. Þau stunda auðgandi landbúnað á jörð sinni, þar sem aðaláherslan er lögð á að bæta jarðveginn með aðstoð jórturdýra og til þess notast þau við beitarstýringar eftir nákvæmu skipulagi.
Þau reka fyrirtækið Sveitakarlinn sem selur vörur beint frá býli undir því merki og er neytendahópurinn stór og fer stöðugt stækkandi enda vilja neytendur fá heilnæmar vörur sem eru framleiddar við kjöraðstæður.


Við fóðrun gripanna á Tyrfingsstöðum er útivera og graseldi langmikilvægast. Þeim er ekki gefið korn eða fóðurbætir nema í undantekningartilvikum.


Þeir gripir sem nú koma til Matlands eru uxar sem voru geltir 6 mánaða gamlir af dýralækni og hafa gengið úti síðan. Myndir/Tyrfingsstaðir

Næringarinnihald M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu nautakjöti:
Orka: 765 kJ, 183 kcal.
Prótein: 24,3 g
Fita: 9,5 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4 g og ómettaðar 4,2 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0

Aðrar upplýsingar

Kjötið frá Tyrfingsstöðum er er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.

Innihald: Ungnautahakk af holdauxum, ungnautakjöt
Upprunaland: Ísland. Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Tyrfingsstöðum
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Magn

3kg., 4kg.

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Litlir pakkar af hakki af grasfóðruðum Angus-uxum frá Tyrfingsstöðum – 5 pk x 300 g”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2026. Matfélagið ehf. Hrísateig 47, 105 Reykjavík. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard