Skip to content Skip to footer

Mergbein af grasfóðruðum nautum frá Tjörn

1.867 kr.2.229 kr.

Mergbein af grasfóðruðum nautum frá Tjörn á Mýrum í Hornafirði. Beinin eru söguð eftir endilöngu og er auðvelt að skafa merginn úr beininu.

Mergbeinin er kjörið að elda á ofnplötu eða grilla. Mergurinn er síðan borðaður með skeið upp úr leggnum eða skafinn úr og notaður í matargerð. Frábær sem forréttur og jafnvel í aðalrétt.

Beinin eru frosin í poka. Þyngdir eru á bilinu 900-1100 g. Um 2-4 stk. eru í hverjum poka. Takmarkað magn.

Þú velur þína stærð með því að velja í fellivalsglugganum hér undir. Kílóverð er 1.990 krónur.

Við sendum þér steikurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , Merkimiðar: , Vörunúmer:58382

Lýsing

Mergbein. Kílóverð: 1.990 kr.

Frystivara.

Bændurnir

Á bænum Tjörn á Mýrum búa bræðurnir Halldór og Agnar Ólafssynir. Þeir eru ungir að árum en hafa tekið við búskap og rekstri á Tjörn.

Nautabúskapurinn á Tjörn er lítill í sniðum en alls eru á þriðja tug nauta í eldi á bænum. Auk þess eru þeir bræður með kindur. Báðir hafa þeir atvinnu utan búsins. Halldór starfar á býlinu Flatey sem er í hópi stærstu kúabúa landsins en Agnar er vélvirki og sinnir vélaviðgerðum fyrir sveitunga sína ásamt fjölbreyttri vélaverktöku. Agnar hefur um árabil getið sér gott orð fyrir þjálfun á fjárhundum og unnið til verðlauna í smalahundakeppnum.


Halldór og Agnar á kornakri í Hornafirði.

Halldór ber ábyrgð á nautaeldinu á Tjörn en hann er mikill ræktunarmaður og hefur gríðarlegan áhuga á skepnum. Hann skírir öll nautin og þekkir ættir bæði feðra og mæðra út og inn. Það þykir sérstakt við nautin á Tjörn að þau eru mörg fallega hyrnd. Það er áhugamál Halldórs og velur hann nautkálfa meðal annars eftir því hvort foreldrarnir séu með horn. Nautkálfana fá þeir bræður nokkurra vikna gamla frá búinu í Flatey og ala þá á Tjörn í sláturstærð í um tvö ár. Nautin á Tjörn eru eingöngu grasfóðruð en kálfarnir fá mjólk fyrstu vikurnar.


Fjósið í Flatey. Nautkálfarnir á Tjörn eru ættaðir frá kúabúinu í Flatey á Mýrum þar sem Halldór starfar. Þaðan eru þeir fluttir nokkurra vikna gamlir að Tjörn þar sem þeir eru aldir í sláturstærð. Myndir / TB

Aðrar upplýsingar

Kjötið frá Tjörn er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.

Innihald: Mergbein af ungnautakjöti.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Tjörn á Mýrum í Hornafirði.
Framleiðandi: Villt og alið á Hellu.
Sláturhús nr. A067 – Sláturhús Hellu hf.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Mergbein

938 g, 1020 g, 1090 g, 1100 g, 1106 g, 1120 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Mergbein af grasfóðruðum nautum frá Tjörn”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…