Skip to content Skip to footer

Osso bucco af Angus frá Stóra-Fjarðarhorni

Price range: 5.048 kr. through 5.564 kr.

Osso bucco af Angus frá Stóra-Fjarðarhorni á Ströndum. Frábær steik í hægeldun. Safarík og bragðmikil.

Kjötið fékk að hanga í 18 daga fram að vinnslu.

Kjötið er frosið og fullmeyrnað. Takmarkað magn.

Þú velur þá stærð það sem hentar þér í fellivalinu hér undir. Kílóverð: 3.790 kr.

Matland sendir þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Matland sendir sms þegar varan er tilbúin til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , , Merkimiðar: , Vörunúmer:77301

Lýsing

Bændurnir

Bændurnir á Stóra-Fjarðarhorni leggja mikla áherslu á fóðrun sinna gripa sem er lykillinn að því að framleiða gæðakjöt. Gripirnir fá fyrsta flokks hey og aðgang að kjarnfóðri. Þau fá líka töluvert af umfram-grænmeti sem framleitt er á búinu.


Á á Stóra-Fjarðarhorni eru nokkur holdanaut sem eru engin smásmíði. Mynd / Guðfinna Lára.

Sjálfbærni og engin sóun

Bændurnir á Stóra-Fjarðarhorni taka þátt í verkefninu Loftslagsvænn landbúnaður sem Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins hefur umsjón með ásamt fleirum. Í því felst að bændurnir gera loftslagsáætlun sem miðar að því að gera búskapinn sem mest sjálfbæran eins og hægt er og sóa sem minnstu.


Á Stóra-Fjarðarhorni búa bændurnir Ágúst Helgi Sigurðsson og Guðfinna Lára Hávarðardóttir með börnum sínum. Mynd / Ásta Þórisdóttir.

Næringarinnihald

M.v. 100 grömm af nautahryggvöðva:
Orka: 739 kJ, 177 kcal.
Prótein: 21,5 g
Fita: 10,1 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4,2 g og ómettaðar 5,2
Kólestról: 66 mg
Kolvetni: 0

Varan

Kjötið frá Stóra-Fjarðarhorni er unnið á Hellu hjá kjötiðnaðarmönnum hjá fyrirtækinu Villt og alið ehf. Flokkunin á nautinu var mjög góð en það fór í UNR+3- og fallþunginn var 423 kg.

Frystivara.

Innihald: Osso bucco af Angus-nauti frá Stóra-Fjarðarhorni
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Stóra-Fjarðarhorni í Kollafirði á Ströndum.
Framleiðandi: Villt og alið ehf.
Sláturhús nr. A067 – Sláturhús Hellu hf.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Osso bucco, þyngdir

1142 g, 1332 g, 1374 g, 1468 g, 1490 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Osso bucco af Angus frá Stóra-Fjarðarhorni”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…