Rifjasteikur á beini frá Gunnbjarnarholti

Price range: 4.934 kr. through 8.468 kr.

Rifjasteikur á beini. Kjötið er af holdmiklu nauti frá Gunnbjarnarholti. Stuttrif sem yndislegt er að hægelda og smella svo á grillið í lokin. 3-4 bitar í pakka. Sjá eldunarleiðbeiningar hér neðar á síðunni.

Kjötið er vel hangið en það fékk 14 daga í meyrnun áður en það var unnið. Kælivara.

Þú velur þá stærð það sem hentar þér í fellivalinu hér undir. Best fyrir 24. júní. Kílóverð 4.290 krónur.

Matland sendir þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir pöntun eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Einnig hægt að fá afhent á Pikkolóstöðvum á höfuðborgarsvæðinu. Við sendum þér SMS þegar pöntunin er tilbúin. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Má bjóða þér sósu?

Verð vöru: 4.934 kr.
Aukahlutir:
Samtals:

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , , , Merkimiðar: , Vörunúmer:85296

Lýsing

Hvernig er best að elda nautarif?

Nautarif krefjast langrar eldunar og það er best að hafa þolinmæðina með í för þegar þau eru matreidd.

Kryddið eftir smekk. Matland mælir með að nota grófmulinn pipar og flögusalt.

Fjórar aðferðir sem Matland mælir með:

  1. Sjóðið rifin í potti. Setjið bjór, vatn, grænmeti og krydd í pott ásamt rifjunum og látið malla við lágan hita í 3 klst. Skellið svo rifjunum á snarkheitt grill og penslið með bbq-sósu.
  2. Rifin sett í eldfast mót í ofn. Látið bjór í botninn ásamt grænmeti og kryddi. Hafið ofninn í 100-120°C og látið malla í a.m.k. 3 klst. Passið að bleyta jafnt og þétt og ekki láta þorna. Hækkið hitann í lokin til þess að ná upp skorpu.
  3. Reykið og eldið rifin í reykofni eða smoker. Eldið í 100-120°C hita í 3 klst. Takið rifin að því loknu og stráið púðursykri, salti og pipar á bitann. Vefjið í álpappír eða sérstakan smjörpappír og hendið aftur inn í hitann í 1 klst.
  4. Þegar Klúbbur matreiðslumeistara hélt hátíðarkvöldverð um áramót voru nautarif frá Hvammi fyrir valinu. Þá voru þau sett í saltpækil í um 15 klst. og síðan sous-viduð á 79°C í 15-20 klst. Eftir það voru rifin kæld niður, beinin tekin af og bitarnir grillaðir á háum hita og penslaðir með unagi-gljáa. Skoðið nánar upplýsingar um aðferðina og uppskriftina hér.

Ef búið er að frysta nautakjöt þá er gott að gefa sér góðan tíma í að afþíða kjötið í kæli. Mikilvægt er að taka út úr kæli a.m.k. klukkutíma áður en eldamennskan hefst og hafa kjötið við stofuhita.

Rifin sem meðlimir í Klúbbi matreiðslumeistara elduð við hátíðarkvöldverð um áramót. Sjá lýsingu og uppskrift.

 

Arnar Bjarni Eiríksson og Berglind Bjarnadóttir voru kornung þegar þau hófu búskap árið 1988 með um 20 kýr. Á jörð þeirra hefur verið stundaður kúabúskapur síðan 1789 af sömu fjölskyldu, forfeðrum Arnars í sjö ættliði. Uppbyggingin hefur verið mikil og nú áratugum síðar hafa þau ásamt fjölskyldu sinni byggt yfir um 500 gripi í Gunnbjarnarholti, þar af um 230 mjólkandi kýr í einu fullkomnasta fjósi landsins. Fyrir nokkru hófu þau markaðssetningu á mjólkurvörum frá Gunnbjarnarholti undir heitinu Hreppamjólk en Margrét dóttir þeirra fer fyrir þeim hluta starfseminnar á búinu.

Fjósið í Gunnbjarnarholti er engin smásmíði. /Myndir úr einkasafni.

Velferð kúnna er í fyrirrúmi í fjósinu í Gunnbjarnarholti og þess gætt að kýrnar njóti besta atlætis og aðbúnaðar sem völ er á. Í hluta byggingarinnar er mjólkurbú þar sem m.a. er framleidd neyslumjólk, skyrdrykkir, jógúrt og rjómi. Við veginn neðan við fjósið er lítil verslun með sjálfsölum þar sem hægt er að kaupa mjólkurvörur frá búinu, s.s. Hreppamjólk, skyrdrykki og ís.

Aðrar upplýsingar

Kjötið frá Gunnbjarnarholti er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.

Innihald: Nautarif, 3-4 bitar í pakka.
Upprunaland: Ísland, slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Gunnbjarnarholti
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Rifjasteikur, þyngdir

1150 g, 1236 g, 1284 g, 1296 g, 1398 g, 1484 g, 1536 g, 1568 g, 1632 g, 1974 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Rifjasteikur á beini frá Gunnbjarnarholti”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2026. Matfélagið ehf. Hrísateig 47, 105 Reykjavík. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard