Skip to content Skip to footer

Roastbeef af Angus frá Gunnbjarnarholti

Price range: 7.837 kr. through 9.836 kr.

Innralæri úr holdakvígu frá Fjölskyldubúinu Gunnbjarnarholti. Kjöt sem hentar frábærlega í roastbeef-gerð.

Kjötið er vel hangið en það fékk 16 daga í meyrnun áður en það var unnið. Kælivara. Best fyrir 2. des. Kílóverð er 7.190 krónur.

Þú velur þína stærð með því að velja í fellivalsglugganum hér undir.

Við sendum þér steikurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Má bjóða þér sósu?

Verð vöru:7.837 kr.
Aukahlutir:
Samtals:

Lýsing

Arnar Bjarni Eiríksson og Berglind Bjarnadóttir voru kornung þegar þau hófu búskap árið 1988 með um 20 kýr. Á jörð þeirra hefur verið stundaður kúabúskapur síðan 1789 af sömu fjölskyldu, forfeðrum Arnars í sjö ættliði. Uppbyggingin hefur verið mikil og nú áratugum síðar hafa þau ásamt fjölskyldu sinni byggt yfir um 500 gripi í Gunnbjarnarholti, þar af um 230 mjólkandi kýr í einu fullkomnasta fjósi landsins. Fyrir nokkru hófu þau markaðssetningu á mjólkurvörum frá Gunnbjarnarholti undir heitinu Hreppamjólk en Margrét dóttir þeirra fer fyrir þeim hluta starfseminnar á búinu.

Fjósið í Gunnbjarnarholti er engin smásmíði. /Myndir úr einkasafni.

Velferð kúnna er í fyrirrúmi í fjósinu í Gunnbjarnarholti og þess gætt að kýrnar njóti besta atlætis og aðbúnaðar sem völ er á. Í hluta byggingarinnar er mjólkurbú þar sem m.a. er framleidd neyslumjólk, skyrdrykkir, jógúrt og rjómi. Við veginn neðan við fjósið er lítil verslun með sjálfsölum þar sem hægt er að kaupa mjólkurvörur frá búinu, s.s. Hreppamjólk, skyrdrykki og ís. Kjötið frá Gunnbjarnarholti, sem fæst á Matlandi, er af holdablendingum í lítilli hjörð sem bændurnir hafa ræktað síðustu ár.

Hvernig er best að elda innralæri og útbúa roast beef?

Það er ýmist hægt að heilsteikja innralæri og gera klassískt roast beef eða hluta í steikur. Skerið kjötið í þá þykkt af sneiðum sem henta þínum smekk.

Kryddið eftir smekk. Matland mælir með að nota grófmulinn pipar og flögusalt.

Gefið ykkur góðan tíma til að afþíða kjötið í kæli ef það er frosið, 2-3 dagar er mátulegt. Mikilvægt er að taka út úr kæli a.m.k. klukkutíma áður en eldamennskan hefst og hafa kjötið við stofuhita.

Einföld aðferð við að elda roast beef/innralæri í heilum bitum er að hefja steikingu á mjög heitri pönnu, loka kjötinu með því að steikja upp úr smjöri og olíu. Setjið síðan í ofn við 180°C þar til kjarnhiti nær 55-60°C. Það er líka ágætt að hægelda á minni hita, t.d. 140°C en þá er eldunartíminn vitaskuld lengri. Vefjið kjötið inn í álpappir svo hitinn haldist í því og setjið viskustykki yfir. Látið kjötið hvíla við stofuhita í 10 mínútur áður en það er skorið í sneiðar.

Ef nota á roast beef á samlokur eða í smurbrauðsgerð er kjötið alltaf skorið í örþunnar sneiðar þegar búið er að kæla það yfir nótt.

Það eru fáir sem standast gott roast beef brauð. Mynd / Katla Gunnarsdóttir


Fallegt roastbeef úr íslensku Angus-kjöti ásamt meðlæti. Mynd / Karen Rúnarsdóttir

Kjarnhiti nautakjöts

Lítið steikt / 52-55° Lítið miðlungs / 55-60° Miðlungs / 60-65° Miðlungs mikið / 65-69° Mikið steikt / 71-75°

Næringarinnihald M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu nautakjöti:
Orka: 765 kJ, 183 kcal.
Prótein: 24,3 g
Fita: 9,5 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4 g og ómettaðar 4,2 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0

Aðrar upplýsingar

Kjötið frá Gunnbjarnarholti er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.

Innihald: Innralæri
Upprunaland: Ísland, slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Gunnbjarnarholti
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Innralæri, þyngdir

1090 g, 1196 g, 1202 g, 1210 g, 1318 g, 1322 g, 1326 g, 1368 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Roastbeef af Angus frá Gunnbjarnarholti”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…