Lýsing
Bændurnir
Í Holti í Álftaveri í Skaftárhreppi reka tvær kynslóðir blandað bú með mjólkurkýr, sauðfé og holdagripi ásamt hrossum. Ábúendur í félagsbúinu Holti eru Konný Sif Gottsveinsdóttir, Þorbergur Jónsson, Gottsveinn Eggertsson og Svana Sigurjónsdóttir.
Nautgripir í Álftaveri. Mynd / TB
Hvernig er best að elda innralæri og útbúa roast beef?
Það er ýmist hægt að heilsteikja innralæri og gera klassískt roast beef eða hluta í steikur. Skerið kjötið í þá þykkt af sneiðum sem henta þínum smekk.
Kryddið eftir smekk. Matland mælir með að nota grófmulinn pipar og flögusalt.
Gefið ykkur góðan tíma til að afþíða kjötið í kæli ef það er frosið, 2-3 dagar er mátulegt. Mikilvægt er að taka út úr kæli a.m.k. klukkutíma áður en eldamennskan hefst og hafa kjötið við stofuhita.
Einföld aðferð við að elda roast beef/innralæri í heilum bitum er að hefja steikingu á mjög heitri pönnu, loka kjötinu með því að steikja upp úr smjöri og olíu. Setjið síðan í ofn við 180°C þar til kjarnhiti nær 55-60°C. Það er líka ágætt að hægelda á minni hita, t.d. 140°C en þá er eldunartíminn vitaskuld lengri. Vefjið kjötið inn í álpappir svo hitinn haldist í því og setjið viskustykki yfir. Látið kjötið hvíla við stofuhita í 10 mínútur áður en það er skorið í sneiðar.
Ef nota á roast beef á samlokur eða í smurbrauðsgerð er kjötið alltaf skorið í örþunnar sneiðar þegar búið er að kæla það yfir nótt.

Það eru fáir sem standast gott roast beef brauð. Mynd / Katla Gunnarsdóttir

Fallegt roastbeef úr íslensku Angus-kjöti ásamt meðlæti. Mynd / Karen Rúnarsdóttir
Kjarnhiti nautakjöts
Lítið steikt / 52-55°
Lítið miðlungs / 55-60°
Miðlungs / 60-65°
Miðlungs mikið / 65-69°
Mikið steikt / 71-75°
Næringarinnihald
M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu nautakjöti:
Orka: 765 kJ, 183 kcal.
Próten: 24,3 g
Fita: 9,5 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4 g og ómettaðar 4,2 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0
Aðrar upplýsingar
Kjötið er af Angus-holdagripum frá bænum Holti í Álftaveri og er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.
Innihald: Innralæri af ungnautum, Angus-holdagripir.
Upprunaland: Ísland, slátrað og unnið á Íslandi.
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is




Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.