Tomahawk frá Gunnbjarnarholti

Price range: 11.761 kr. through 13.625 kr.

Tomahawksteik. Kjötið er af holdmiklu nauti frá Gunnbjarnarholti. Steikurnar eru hnausþykkar, 50 mm og henta best á grillið.

Kjötið er vel hangið en það fékk 14 daga í meyrnun áður en það var unnið. Kælivara.

Þú velur þá stærð það sem hentar þér í fellivalinu hér undir. Best fyrir 28. júní. Kílóverð 8.790 krónur.

Matland sendir þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir pöntun eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Einnig hægt að fá afhent á Pikkolóstöðvum á höfuðborgarsvæðinu. Við sendum þér SMS þegar pöntunin er tilbúin. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Má bjóða þér sósu?

Verð vöru: 11.761 kr.
Aukahlutir:
Samtals:

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , , , Merkimiðar: , Vörunúmer:85196

Lýsing

 

Arnar Bjarni Eiríksson og Berglind Bjarnadóttir voru kornung þegar þau hófu búskap árið 1988 með um 20 kýr. Á jörð þeirra hefur verið stundaður kúabúskapur síðan 1789 af sömu fjölskyldu, forfeðrum Arnars í sjö ættliði. Uppbyggingin hefur verið mikil og nú áratugum síðar hafa þau ásamt fjölskyldu sinni byggt yfir um 500 gripi í Gunnbjarnarholti, þar af um 230 mjólkandi kýr í einu fullkomnasta fjósi landsins. Fyrir nokkru hófu þau markaðssetningu á mjólkurvörum frá Gunnbjarnarholti undir heitinu Hreppamjólk en Margrét dóttir þeirra fer fyrir þeim hluta starfseminnar á búinu.

Fjósið í Gunnbjarnarholti er engin smásmíði. /Myndir úr einkasafni.

Velferð kúnna er í fyrirrúmi í fjósinu í Gunnbjarnarholti og þess gætt að kýrnar njóti besta atlætis og aðbúnaðar sem völ er á. Í hluta byggingarinnar er mjólkurbú þar sem m.a. er framleidd neyslumjólk, skyrdrykkir, jógúrt og rjómi. Við veginn neðan við fjósið er lítil verslun með sjálfsölum þar sem hægt er að kaupa mjólkurvörur frá búinu, s.s. Hreppamjólk, skyrdrykki og ís.

Aðrar upplýsingar

Kjötið frá Gunnbjarnarholti er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.

Innihald: Tomahawk úr nauti.
Upprunaland: Ísland, slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Gunnbjarnarholti
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Tomahawk, þyngdir

1338 g, 1392 g, 1550 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Tomahawk frá Gunnbjarnarholti”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2026. Matfélagið ehf. Hrísateig 47, 105 Reykjavík. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard