Túlipanar frá Stykkishólmi – appelsínugulir

2.800 kr.

Túlipanarnir frá Clemens van der Zwet og Elsu Jóhannesdótttur í Stykkishólmi eru á leiðinni í bæinn á ný! 10 stykki í búntinu. Appelsínugulir, einfaldir túlipanar. Verð á einu búnti er 2.800 krónur.

Veldu þann fjölda af vöndum sem þú óskar eftir hér undir.

Matland afhendir túlipanana á Hrísateig 47 í Reykjavík, miðvikudaginn 28. okt. eftir hádegið. Við sendum SMS þegar vörurnar þínar eru tilbúnar til afhendingar. Líka hægt að sækja á afhendingarstaði Pikkoló. Keyrum út til viðskiptavina á höfuðborgarsvæðinu og sendum um allt land með Samskipum.

8 á lager

Flokkar: , Vörunúmer:67158

Lýsing

Afhending miðvikudaginn 28. okt. eftir hádegið.

Framleiðendurnir

Clemens van der Zwet og Elsa Jóhannesdóttir rækta túlipana í 70 fermetra gróðurhúsi í Stykkishólmi. Clemens er Hollendingur og er af ætt túlipanaræktenda þar í landi. Í fimmtíu ár hefur hann ræktað túlipana en síðustu 10 ár hefur hann verið búsettur á Íslandi. Túlipanarnir þeirra eru í öllum regnbogans litum og það eru 10 stykki í búntinu.

Leiðbeiningar

Þegar vöndurinn er kominn heim skaltu skera um 1 cm af stilkunum. Hafðu pappírinn utan um búntið og settu í ískalt vatn í hálftíma. Láttu vatnið aðeins ná 5 cm upp á stilkana. Eftir hálftíma er hægt að taka pappírinn af og bæta aðeins við vatnið. Þá ættu túlipanarnir þínir að vera reistir og fínir.

Varan

Túlipanar. Appelsínugulir, einfaldir. 10 stk í búnti.

Upprunaland: Ísland. Laukarnir eru hollenskir.
Pökkun og dreifing: Clemens van der Zwet
Framleiðendur: Clemens van der Zwet, Garðaflöt 6, 340 Stykkishólmur.

Frekari upplýsingar

Túlipanabúnt

Bleikir, Gulir

Þér gæti einnig líkað við…

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2026. Matfélagið ehf. Hrísateig 47, 105 Reykjavík. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard