Skip to content Skip to footer

Ungnautagúllas frá Reykjahlíð – 2 x 500 g

4.690 kr.

Ungnautagúllas frá Reykjahlíð á Skeiðum. Uxakjöt sem er bæði meyrt og safaríkt.

Nautið  var látið hanga í 14 daga áður en það var unnið. Það þýðir meyrara kjöt. Gúllasið er frosið. Pakkað í flatar plastumbúðir og pakkinn þiðnar fljótt.

2 x 500 g pakkar. Samtals 1 kg. Verð: 4.690 kr./kg.

Við sendum þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

24 á lager

Lýsing

Bændurnir og Búkostakjötið

Bændurnir Ingvar Hersir Sveinsson og Melissa Line í Reykjahlíð á Skeiðum búa með kýr og ala uxa í sláturstærð. Þau hafa um nokkur skeið selt kjöt beint frá býli undir heitinu „Búkostakjöt“.
Uxakjöt er af nautum sem eru gelt um 6 mánaða aldur. Kjötið þykir mjög meyrt og vel fitusprengt þar sem vaxtarhraði er hægari en í hefðbundnu nautaeldi. Uxarnir eru nokkuð spakir og eru eins mikið utandyra og mögulegt er.

Gripirnir í Reykjahlíð fá einungis heimaræktað hey og bygg ásamt óerfðabreyttu kjarnfóðri án pálmafitu. Allt heimaræktað fóður er framleitt án eitur-og varnarefna.


Bændurnir Ingvar Hersir Sveinsson og Melissa Line eru bændur í Reykjahlíð. Myndir / Reykjahlíð


Nautgripirnir í Reykjahlíð hafa það gott yfir sumartímann. Uxarnir eru rólegir og spakir. 

Næringarinnihald

M.v. 100 grömm af hreinum nautavöðva:
Orka: 834 kJ, 199 kcal.
Próten: 19,0 g
Fita: 13,8 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 5,6 g og ómettaðar 6,4
Kólestról: 63 mg
Kolvetni: 0
Vatn: 65,8 g

Aðrar upplýsingar

Kjötið frá Reykjahlíð er unnið og pakkað hjá Villt og alið á Hellu.

Innihald: Uxakjöt – Gúllas
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Reykjahlíð á Skeiðum.
Framleiðandi: Villt og alið.
Sláturhús nr. A067 – Sláturhús Hellu hf.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Ribeye

1.310 g, 1.322 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Ungnautagúllas frá Reykjahlíð – 2 x 500 g”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…