Ungnautahakk af Angus frá Guttormshaga – 5 x 500 g

7.965 kr.

Ungnautahakk af vænum Angusnautum frá Guttormshaga í Holtum. Fituinnihald 8-12% og hakkið er í 500 g pökkum.

5 pk x 500 g = 2,5 kg. Heildarverð fyrir fimm pakka er 8.850 kr. Kílóverð 3.540 kr.

Kjötið er vel hangið en það fékk 16 daga í meyrnun áður en það var unnið. Frystivara.

Við sendum þér kjötið gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Líka hægt að sækja á sjálfsafgreiðslustaði Pikkoló. Við sendum sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

38 á lager

Lýsing

Búskapurinn

Í Guttormshaga er rekið kúabú með bæði íslenskar kýr og litla hjörð af Angus-kúm. Á bænum eru um 60 mjólkandi kýr og um 20 holdakýr.

Á jörðinni búa þrír ættliðir en Daníel Svanur Ólafsson og Kolbrún Hrönn Sigurþórsdóttir hafa tekið við búrekstrinum af foreldrum Daníels. Sama ættin hefur búið í Guttormshaga frá því um 1900 en fyrr á árum var þar prestsetur.


“Við gefum okkar dýrum allt það besta sem völ er á,” segir Daníel Svanur Ólafsson bóndi. Mynd / HSG

Angus-kjöt er safaríkt og afar bragðgott. Aberdeen Angus er heimsþekkt kjötframleiðslukyn sem nú ryður sér til rúms á Íslandi eftir að innflutningur fósturvísa hófst fyrir nokkrum árum. Gripirnir vaxa hraðar og þurfa skemmri tíma til að ná mun betri holdfyllingarflokkun en gripir af íslenska kúakyninu. Það þýðir aukna hagkvæmni í ræktuninni, t.d. betri nýtingu á fermetra í gripahúsum, minni fóðurnotkun og vinnu við hvern grip.

 

Næringarinnihald M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu nautakjöti:
Orka: 765 kJ, 183 kcal.
Prótein: 24,3 g
Fita: 9,5 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4 g og ómettaðar 4,2 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0

Aðrar upplýsingar

Kjötið frá Guttormshaga er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.

Innihald: Ungnautahakk af angusgripum, ungnautakjöt. 8-12% fituinnihald.
Upprunaland: Ísland. Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Guttormshaga
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

 

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Ungnautahakk af Angus frá Guttormshaga – 5 x 500 g”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2026. Matfélagið ehf. Hrísateig 47, 105 Reykjavík. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard