Deila þessari síðu
Í gegnum árin hef ég haldið óteljandi mörg vínnámskeið. Þar hef ég hlotið þau forréttindi að fá að deila því sem ég hef lært með alls konar fólki sem hefur brennandi áhuga á vínum og verð ég að viðurkenna að það er eitt af því skemmtilegra sem ég geri. Á þessum námskeiðum hef ég fengið fjöldann allan af spurningum sem snúa að misskilningum, eða mýtum, um vín og datt mér í hug að deila þeim með ykkur kæru lesendur. Hér eru sex mýtur sem ég verð að leiðrétta!
1. Það er nauðsynlegt að opna flöskuna og leyfa henni að anda í 20-30 mínútur áður en hún er borin til borðs
Kolrangt! Þegar við viljum að vín andi þá er meiningin að koma súrefni í snertingu við vínið. Þegar flaska er opnuð og látin standa er einungis yfirborð vínsins í flöskuhálsinum sem nær einhverri snertingu við súrefni. Ég er enginn stærðfræðingur en ég mundi giska á að það yfirborð nái ekki einu sinni 1% af víninu. Restin kemst aldrei í snertingu við súrefni á þessum 20-30 mínútum.
Ef vínið þarf að anda, og það er yfirleitt stórt ef, þá er langbest að umhella því í karöflu og láta það anda þar.
Hins vegar er þessi mýta ekki alveg gagnslaus því að þetta er afbragðs afsökun til að opna flöskuna og fá sér eitt lítið glas á undan öllum hinum.
2. Rauðvín skal drekka við stofuhita
Það skal viðurkennast að einhvers staðar í heiminum er þessi regla góð og gild. En ekki á Íslandi þar sem heimiliskynding kostar afar lítið miðað við önnur lönd. Þessi „regla“ á rætur sínar að rekja til 19. aldar Evrópu þar sem að kynding heimila var almennt ekkert sérstök og stofuhiti kannski nær 18-19 gráðum, sem er einmitt tilvalið hitastig fyrir bragðmeiri rauðvín. Í dag er hitastig íslenskra heimila nær 22-23 gráðum sem er allt of heitt fyrir flest, ef ekki öll rauðvín.
Það er mín reynsla að vín sem fara yfir 19-20 gráður vilja oft verða stálkennd, flöt og óspennandi. Ég mæli því eindregið með að setja flöskur, sem eru við stofuhita, inn í kæli í hálftíma til klukkutíma áður en þær eru opnaðar. Það mun gera gæfumuninn, ég lofa því.
3. Súlfíð í vinum valda hausverk
Það er engu líkara en að súlfíð og alkóhól hafi einhvern tímann stofnað til veðmáls og súlfíðið tapað því veðmáli því flest allt sem alkóhól gerir af sér lendir á ábyrgð súlfíða. Súlfíð verður til við gerjun og innihalda því öll vín eitthvað af súlfíði þó vissulega sé magnið eitthvað minna í lífrænt ræktuðum vínum og náttúruvínum. Ef við horfum á matvæli eins og t.d. þurrkaða ávexti og sultu þá innihalda þau meira súlfíð en vín. Það virðist enginn kvarta undan hausverk af þeirra völdum!
Við erum ekkert endilega á því að það sé þessi 12-15% af rúmmáli vínsins sem kallast alkóhól sem gætu framkallað hausverkinn, nei – við skulum kenna súlfíðinu um…
4. Þykkari tár = betra vín
Það eru greinilega mjög margir áhugasamir um tárin í víninu, þ.e.a.s. taumana sem leka niður hliðar glassins eftir að það er búið að þyrla því aðeins upp. Ég fæ þessa spurningu afskaplega oft. Þó að tárin gefi ágæta vísbendingu um áfengis- og sykurinnihald vínsins þá hafa þau því miður ekkert með gæði vínsins að gera og mæli ég eindregið með að pæla miklu frekar í ilmi og bragði frekar en tárum.
5. Vín með skrúftappa eru verri en vín með korktappa
Við skulum afskrifa þessa mýtu sem snobb fortíðarinnar. Það er í raun ótrúlegt hvað þessi mýta hefur orðið langlíf. Skrúftappar komu fyrst á markað í lok sjötta áratugarins en mættu mikilli mótspyrnu sem varði í nokkra áratugi. Það er ekki fyrr en um aldamótin sem að framleiðendur sem og neytendur virðast taka skrúftappann að hluta til í sátt. Báðir tapparnir hafa sína kosti og galla en það er alls ekki rétt að gæðin séu verri í vínum með skrúftappa.
6. Vín verða betri með aldrinum
Það væri hægt að útvíkka þessa mýtu því ég hef oft verið spurður hvort að öll vín verði betri með aldrinum. Hvorugt er satt en af mismunandi ástæðum. Í fyrsta lagi eru fæst vín gerð til að þola geymslu að einhverju ráði og eru í raun best innan nokkurra ára. Í öðru lagi þá er þetta allt saman spurning um smekk. Einhverjum kann að finnast ungleg og ávaxtarík vín góð meðan að öðrum finnst þroskaðir tónar sem myndast í vínum með geymslu algjört nammi. Það er því afskaplega erfitt að alhæfa nokkuð hér.
Réttara væri að segja að vín verða öðruvísi með aldrinum og það er svo persónubundið hvort að fólki líkar við þá breytingu.