Deila þessari síðu
Þann 4. mars nk. hefst námskeiðið Fullverkun á lambi sem er nýtt námskeið hjá fræðslusetrinu Iðunni. Kennt verður í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi. Eins og nafnið gefur til kynna þá verður heill lambaskrokkur úrbeinaður og fullverkaður á námskeiðinu. Þátttakendur fá allt hráefni til notkunar og taka með sér heim þær afurðir sem búnar eru til.
Nýtum allt á ólíka vegu
Á námskeiðinu verða sýndar margvíslegar afurðir úr hverjum hluta lambsins og áhersla lögð á hvernig hægt er að nýta skrokkhluta á ólíka vegu. Þátttakendur gera m.a. pylsur, fást við jerky-gerð og grafa vöðva. Einnig verður fengist við söltun á rúllupylsu og áleggsgerð. Sýnt verður hvernig á að skjóta í net og búa til kryddblöndur fyrir afurðirnar. Möguleiki er að fara í gegnum kæfugerð ef einhverjir þátttakendur óska eftir því.
Kennt á tveimur dögum
Leiðbeinendur eru Jónas Þórólfsson og Rúnar Ingi Guðjónsson sem báðir eru reyndir kjötiðnaðarmenn. Lengd námskeiðsins er 14 klukkustundir og kennt verður á tveimur dögum, laugardaginn 4. mars og sunnudaginn 5. mars.
Nánari upplýsingar um námskeiðið má nálgast hér.
-
Grænmeti í áskrift –Frá: 4.995 kr. / á mánuði