Lýsing
Beykireykt kindabjúgu, 4 stk, tvö í pakka. Verð pr. pakka 1.120 krónur. Kg-verð: 2.800 kr.
Frystivara.
Innihald: Ærkjöt (72%), vatn, kartöflumjöl, nitrítsalt, pipar, paprikuduft, múskat, cayennepipar.
Bændurnir
Sölvanes er sauðfjárbú á Fremribyggð í Skagafirði, 20 km sunnan við Varmahlíð. Þar búa Rúnar Máni Gunnarsson og Eydís Magnúsdóttir. Þau keyptu búið árið 2013 og eru nú með lífræna vottun á framleiðslunni. Féð gengur í Hamraheiði ofan við bæinn á sumrin.
Hjónin vinna vörurnar sjálf í Vörusmiðju Biopol á Skagaströnd og allt kjöt er látið hanga fyrir frystingu. Á bænum eru einnig nokkur hross og þar er rekin ferðaþjónusta. Kjötið frá Sölvanesi hefur um nokkurt skeið verið á matseðli á veitingastaðnum Kaffi Laugalæk sem er í sama húsi og Matland.
Rúnar Máni Gunnarsson og Eydís Magnúsdóttir.
Sölvanes í Skagafirði. /Myndir úr einkasafni.
Í Sölvanesi er einnig gistihús þar sem hægt er að fá uppbúin rúm eða svefnpokapláss ásamt morgunmat ef óskað er. Boðið er upp á sveitaheimsóknir allt árið um kring fyrir einstaklinga og hópa. Þá er hægt að fræðast um sveitina, skoða kindurnar og jafnvel fleiri dýr eins og hross, hænur, hund og kött og fá kaffisopa eða kakó á eftir. Heimsóknir þarf að panta fyrirfram.
Aðrar upplýsingar
Kjötið frá Sölvanesi er unnið og pakkað í Vörusmiðju Biopól á Skagaströnd.
Frystivara.
Innihald: Ærkjöt (72%), vatn, kartöflumjöl, nitrítsalt, pipar, paprikuduft, múskat, cayennepipar. Beykireykt kindabjúgu. Tilbúin og þarf bara að hita upp.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Sölvanesi
Framleiðandi: Bændurnir í Sölvanesi hjá Biopol á Skagaströnd
Sláturhús: Sláturhús SAH
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is