Skip to content Skip to footer

Piparsteik af 100% Angusnauti frá Stóra-Ármóti

3.616 kr.3.630 kr.

Piparsteikur úr innralæri af 100% angusnauti frá nautgriparæktarstöðinni á Stóra-Ármóti. Kjöt sem er upplagt á grillið. Nettar steikur með hæfilegu piparmagni á jöðrunum. 3-5 smásteikur í pakkanum.

Kjötið er vel hangið en það fékk 14 daga í meyrnun áður en það var unnið. Frystivara.

Þú velur þína stærð með því að velja í fellivalsglugganum hér undir. Kílóverð er 7.290 krónur.

Við sendum þér steikurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , Merkimiðar: , , , Vörunúmer:43483

Lýsing

Hreint anguskjöt frá Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa.

Piparsteik úr innralæri. Kílóverð: 7.290 kr. Ágætt er að miða við 200-250 g á mann í aðalmáltíð. Frystivara.

Hreinræktaður Aberdeen Angus

Matland býður til sölu kjöt úr hreinræktuðu Aberdeen Angus nauti frá Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa. Þetta er safaríkt og afar bragðgott kjöt. Gripurinn var látinn hanga í 14 daga til meyrnunar áður en hann var unninn í kjötvinnslu Villt & alið á Hellu.

Angus er kjötframleiðslukyn Aberdeen Angus er heimsþekkt kjötframleiðslukyn sem nú ryður sér til rúms á Íslandi. Tilgangurinn með innflutningi fósturvísa og sæðis til Íslands er að búa til nýja blendinga Angusnauta og íslenskra gripa til að efla kjötframleiðsluna. Nú þegar sést að árangur af innflutningi erfðaefnis sýnir stórfelldar framfarir í framleiðslu nautakjöts hér á landi. Gripirnir vaxa hraðar og þurfa skemmri tíma til að ná mun betri holdfyllingarflokkun. Það þýðir aukna hagkvæmni í ræktunni, t.d. betri nýtingu á fermetra í gripahúsum, minni fóðurnotkun og vinnu við hvern grip.

Angus-kýr á sumarbeit við kynbótastöðina á Stóra-Ármóti.

Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa. Hér eru kynbótagripirnir aldir við fyrirmyndar aðstæður. Myndir / TB

Kjarnhiti nautakjöts

Lítið steikt / 52-55° Lítið miðlungs / 55-60° Miðlungs / 60-65° Miðlungs mikið / 65-69° Mikið steikt / 71-75°

Næringarinnihald M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu nautakjöti:
Orka: 765 kJ, 183 kcal.
Prótein: 24,3 g
Fita: 9,5 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4 g og ómettaðar 4,2 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0

Aðrar upplýsingar

Kjötið frá Stóra-Ármóti er er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.

Innihald: Piparsteik úr innralæri af angusnauti
Upprunaland: Ísland Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Stóra-Ármóti
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Piparsteik

472 g, 482 g, 490 g, 496 g, 496 g, 496 g, 498 g, 502 g, 502 g, 520 g, 524 g, 544 g, 548 g, 552 g, 558 g, 568 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Piparsteik af 100% Angusnauti frá Stóra-Ármóti”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…