Skip to content Skip to footer

Einiberjapylsa úr grísakjöti frá Litla búgarðinum – 2 stk.

2.360 kr.

Einiberjapylsa úr smiðju Sigurðar Haraldssonar kjötmeistara í Pylsumeistaranum. Unnin úr grisakjöti frá Litla búgarðinum á Hlemmiskeiði. Kjöt af grísum sem fá að valsa um í beitarhólfi þar sem þeir bíta gras og fá að auki íslenskt kornfóður.

Tvö stykki.
Þyngd 180 g x 2 = 360 g
Verð: 2 stk x 1.180 kr. = 2.360 kr.

Kílóverð er 6.560 krónur.

Við sendum þér vöruna gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík, daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Lýsing

2 x einberjapylsa frá Pylsumeistaranum sem er með kjöti af lausagöngugrísum á Hlemmiskeiði.
Einiberjapylsa, þurrpylsa. Soðin vara. Kælivara. 2 stk. x 180 g. Kílóverð: 6.565 kr.

Litli búgarðurinn á Hlemmiskeiði

Bændurnir Ævar Austfjörð og Ása Sif Tryggvadóttir búa á smábýlinu Hlemmiskeiði 1 í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Þau kalla búskapinn sinn „Litla búgarðinn“ en þar er megináhersla lögð á dýravelferð og umhverfisvænar aðferðir í stóru sem smáu. Ævar og Ása ala m.a. grísi sem eru frjálsir innan stórs beitarhólfs. Þar éta þeir gras og er líka gefið íslenskt fóður sem ræktað er í nágrenninu.

Ævar og Ása fluttu í sveitina árið 2021 og byrjuðu á því að fá til sín nokkra nautkálfa. Síðan vatt búskapurinn upp á sig og nú eru þau með hænur og frjálsa grísi í eldi. Þau beita nokkuð óvenjulegum aðferðum í búskapnum sem þau kalla „auðgandi landbúnað“ (e. Regenerative agriculture).

Ævar útskýrir í hverju aðferðirnar felast: „Þessar aðferðir snúast um að nota sem minnst og helst ekkert af tilbúnum áburði og einnig sem minnst af vélbúnaði til landvinnslu. Í staðinn notum við skepnurnar til að örva gróðurvöxt með ágangi eins og t.d. traðki nautgripa og einnig traðki og róti svína og kjúklinga. Við höfum skepnurnar í hólfum afmörkuð með rafmagnsgirðingum og færum gripina reglulega til að stýra hvað mikið er étið og hversu mikill ágangurinn verður. Tilgangurinn með áganginum og beitarstýringunni ásamt því að plægja ekki er m.a. að dýpka rótarkerfi plantna og hyggja upp næringarríkan jarðveg og auka þannig lífrænt efni í honum,“ segir Ævar.

„Árangurinn af þessu er mjög góður hingað til. Landið okkar hefur tekið vel við sér og við fáum mun meiri grasvöxt núna í lok fjórða sumars en áður. Við höfum reyndar séð framfarir á hverju ári.“

„Grísirnir okkar fá íslenskt fóður ræktað af nágrönnum okkar ásamt því að þeir éta mikið af grasi, rótum og öðru góðgæti sem þeir finna í jarðveginum. Þeir bera svo á fyrir okkur með sínum úrgangi og bæta þannig landgæði þess svæðis sem þeir fari yfir á hverju ári. Kjötið af þeim er bragðmikið og bragðgott og oft örlítið dekkra en fólk á að venjast af grísakjöti,” segir Ævar Austfjörð.

Sigurður Haraldsson, kjötiðnaðarmeistari í Pylsumeistaranum, var útnefndur Kjötmeistari Íslands árið 2022 af fagfélagi kjötiðnaðarmanna. Hann á heiðurinn af gerð einiberjapylsunnar.

Næringarinnihald

M.v. 100 grömm af einiberjapylsu úr grísakjöti:
Orka: 952 kJ, 229 kcal.
Prótein: 13,0 g
Fita: 19,0 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 8,0 g
Kolvetni: 0 g
Salt: 1,8 g

Innihald

Grísakjöt frá Litla búgarðinum, salt, rotvarnarefni E250, sjávarsalt, krydd.

Aðrar upplýsingar

Einiberjapylsan er unnin af Pylsumeistaranum úr kjöti af grísum frá Litla búgarðinum á Hlemmiskeiði 1.
Innihald: Einiberjapylsa, 180 g.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Hlemmiskeiði 1.
Framleiðandi: Pylsumeistarinn, Kársnesbraut 112, Kópavogi
Kjötvinnsla og úrbeining: Villt og alið ehf. á Hellu
Sláturhús: Sláturhús SS á Selfossi.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Ofnsteik

1018 g, 1022 g, 1030 g, 1078 g, 1230 g, 1236 g, 1256 g, 1288 g, 1324 g, 1366 g, 1368 g, 1371 g, 1396 g, 1428 g, 1564 g, 1582 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Einiberjapylsa úr grísakjöti frá Litla búgarðinum – 2 stk.”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…