100% Angus-snitsel frá Vindheimum

Price range: 2.445 kr. through 3.273 kr.

Snitsel af 100% Angusnauti frá Neðri-Vindheimum í Hörgárdal í Eyjafirði. 2-4 sneiðar í pakkanum. Kjöt sem hentar vel í snitsel en líka eintómt steikt stuttlega á pönnu. 

Gripirnir fengu að hanga í 14 daga fyrir vinnslu. Það þýðir meyrara kjöt en líka minni rýrnun á pönnunni.

Þú velur þá stærð það sem hentar þér í fellivalinu hér undir. Kílóverð: 4.990 kr.

Matland sendir þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir pöntun eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Einnig hægt að fá afhent á Pikkolóstöðvum á höfuðborgarsvæðinu. Við sendum þér SMS þegar pöntunin er tilbúin. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , , Merkimiðar: , Vörunúmer:84664

Lýsing

Hvernig á að steikja snitsel?

Björn Teitsson deilir ráðum hér með lesendum Matlands hvernig á að útbúa hið fullkomna snitsel.

Katla Gunnarsdóttir segir hér frá því hvernig Danir vilja hafa sitt snitsel.

Bændurnir

Á Neðri-Vindheimum í Hörgárdal búa bændurnir Kristbjörg og Björn ásamt börnum sínum fjórum. Þar reka þau saman blandað bú með holdakúm, kindum og hrossum. Kýrnar eru allar hýstar yfir vetrartímann líkt og kindurnar. Við burð á vorin fara þær út með kálfa sína fram á haust. Bændurnir í Vindheimum hafa lagt mikla áherslu á að bæta kjötframleiðsluna á síðustu árum. Þau hafa markvisst byggt búskapinn upp með Angus-gripum sem gefur aukinn vaxtarhraða og meiri kjötgæði.


Holdagripir af Angus-kyni á Vindheimum í Hörgárdal.

Aðrar upplýsingar

Frystivara.

Innihald: Snitsel. Nautakjöt af 100% Angus.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Vindheimum
Framleiðandi: Villt og alið ehf. á Hellu
Sláturhús: Sláturhús Norðlenska
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Snitsel, þyngdir

490 g, 492 g, 492 g, 494 g, 500 g, 502 g, 508 g, 512 g, 514 g, 518 g, 524 g, 524 g, 524 g, 524 g, 540 g, 544 g, 548 g, 548 g, 548 g, 552 g, 554 g, 554 g, 556 g, 556 g, 558 g, 558 g, 564 g, 566 g, 576 g, 576 g, 578 g, 592 g, 594 g, 594 g, 598 g, 600 g, 600 g, 602 g, 608 g, 610 g, 610 g, 616 g, 630 g, 640 g, 656 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “100% Angus-snitsel frá Vindheimum”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…