Lýsing
Hvernig er best að elda nautarif?
Nautarif krefjast langrar eldunar og það er best að hafa þolinmæðina með í för þegar þau eru matreidd.
Kryddið eftir smekk. Matland mælir með að nota grófmulinn pipar og flögusalt.
Fjórar aðferðir sem Matland mælir með:
- Sjóðið rifin í potti. Setjið bjór, vatn, grænmeti og krydd í pott ásamt rifjunum og látið malla við lágan hita í 3 klst. Skellið svo rifjunum á snarkheitt grill og penslið með bbq-sósu.
- Rifin sett í eldfast mót í ofn. Látið bjór í botninn ásamt grænmeti og kryddi. Hafið ofninn í 100-120°C og látið malla í a.m.k. 3 klst. Passið að bleyta jafnt og þétt og ekki láta þorna. Hækkið hitann í lokin til þess að ná upp skorpu.
- Reykið og eldið rifin í reykofni eða smoker. Eldið í 100-120°C hita í 3 klst. Takið rifin að því loknu og stráið púðursykri, salti og pipar á bitann. Vefjið í álpappír eða sérstakan smjörpappír og hendið aftur inn í hitann í 1 klst.
- Þegar Klúbbur matreiðslumeistara hélt hátíðarkvöldverð um áramót voru nautarif frá Hvammi fyrir valinu. Þá voru þau sett í saltpækil í um 15 klst. og síðan sous-viduð á 79°C í 15-20 klst. Eftir það voru rifin kæld niður, beinin tekin af og bitarnir grillaðir á háum hita og penslaðir með unagi-gljáa. Skoðið nánar upplýsingar um aðferðina og uppskriftina hér.
Ef búið er að frysta nautakjöt þá er gott að gefa sér góðan tíma í að afþíða kjötið í kæli. Mikilvægt er að taka út úr kæli a.m.k. klukkutíma áður en eldamennskan hefst og hafa kjötið við stofuhita.

Rifin sem meðlimir í Klúbbi matreiðslumeistara elduð við hátíðarkvöldverð um áramót. Sjá lýsingu og uppskrift.

Búskapurinn
Í Guttormshaga er rekið kúabú með bæði íslenskar kýr og litla hjörð af Angus-kúm. Á bænum eru um 60 mjólkandi kýr og um 20 holdakýr.
Á jörðinni búa þrír ættliðir en Daníel Svanur Ólafsson og Kolbrún Hrönn Sigurþórsdóttir hafa tekið við búrekstrinum af foreldrum Daníels. Sama ættin hefur búið í Guttormshaga frá því um 1900 en fyrr á árum var þar prestsetur.

“Við gefum okkar dýrum allt það besta sem völ er á,” segir Daníel Svanur Ólafsson bóndi. Mynd / HSG

Angus-kjöt er safaríkt og afar bragðgott. Aberdeen Angus er heimsþekkt kjötframleiðslukyn sem nú ryður sér til rúms á Íslandi eftir að innflutningur fósturvísa hófst fyrir nokkrum árum. Gripirnir vaxa hraðar og þurfa skemmri tíma til að ná mun betri holdfyllingarflokkun en gripir af íslenska kúakyninu. Það þýðir aukna hagkvæmni í ræktuninni, t.d. betri nýtingu á fermetra í gripahúsum, minni fóðurnotkun og vinnu við hvern grip.
Kjarnhiti nautakjöts
Lítið steikt / 52-55° Lítið miðlungs / 55-60° Miðlungs / 60-65° Miðlungs mikið / 65-69° Mikið steikt / 71-75°
Næringarinnihald M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu nautakjöti:
Orka: 765 kJ, 183 kcal.
Prótein: 24,3 g
Fita: 9,5 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4 g og ómettaðar 4,2 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0
Aðrar upplýsingar
Kjötið frá Guttormshaga er er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.
Innihald: Nautarif af angusgripum, ungnautakjöt
Upprunaland: Ísland. Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Guttormshaga
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is



Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.